Ljóst er að íslenskt samfélag er nú að hefja annan kafla í glímunni við Covid-19 þar sem vera kann að beita þurfi aðgerðum bæði innan lands og á landamærum um langt skeið til að hefta útbreiðslu veirunnar. Veiran er enn í vexti víða um lönd og sums staðar verið að herða reglur aftur.
Á þessum orðum hefst tilkynning á vef heilbrigðisráðuneytisins.
Sóttvarnalæknir hefur lagt áherslu á að halda beri áfram skimunum á landamærum auk þess sem nú eru í gildi umtalsverðar takmarkanir á samkomuhaldi í samfélaginu. Verið er að beita skimunum, sýnatökum, smitrakningu, einangrun og sóttkví líkt og gert hefur verið allt frá upphafi faraldursins og mun það verða gert áfram, segir í tilkynningunni. „Vera kann að slakað verði á takmörkunum eða þær hertar allt eftir því hver þróunin verður.“
Sóttvarnalæknir hefur síðustu daga minnt á að hans hlutverk sé að leggja til aðgerðir vegna sóttvarna. Annarra sé að taka ákvarðanir um aðra þætti sem máli skipta. Hefur hann sagt þau mál pólitísk og efnahagsleg.
Í tilkynningunni kemur fram að „margháttað samráð hefur verið viðhaft allt frá því að veiran skaut fyrst upp kollinum hér á landi. Stýrihópar hafa verið starfandi, annars vegar um innanlandsvarnir og hins vegar um skimanir á landamærum þar sem ýmsir aðilar hafa verið kallaðir til.“
Svo segir:
„Með vísan til þess hversu stórt samfélagsverkefni er um að ræða liggur fyrir að við þessi kaflaskil þarf að að efna til samráðs helstu lykilaðila um áframhaldandi aðgerðir gegn Covid-19. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að boða til samráðsvettvangs í formi vinnustofu þann 20. ágúst nk. Þar verður rætt hvernig móta megi aðgerðir og stefnu til lengri tíma litið. Vegna takmarkana á samkomum fer hluti af vinnustofunni fram með fjarfundabúnaði í fleiri hópum til þess að sem flest sjónarmið komist að.“
Heilbrigðisráðuneytið vinnur nú að undirbúningi vinnustofunnar og mun bjóða til þessa vettvangs innan skamms í samstafi við önnur ráðuneyti og stjórnvöld. Nánar verður greint frá fyrirkomulagi og verklagi snemma í næstu viku.
Í framhaldi af vinnustofunni verður komið á fót fimm manna verkefnateymi til að annast framkvæmd aðgerða vegna Covid-19. Teymið mun starfa undir stjórn sóttvarnalæknis út árið 2021.