Fjöldi þeirra sem greinst hefur með virkt smit af kórónuveirunni hér á landi síðustu daga og er í einagrun er120 samkvæmt því sem fram kemur á vefnum COVID.is. Sex ný tilfelli greindust innanlands í gær, öll hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans. Þá bíða fjögur sýni mótefnamælingar úr landamæraskimun.
Í gær voru 766 í sóttkví en í dag er fjöldinn kominn niður í 720.
Einn liggur enn á sjúkrahúsi með COVID-19 og er hann á gjörgæsludeild.
695 sýni voru tekin og greind hjá Landspítalanum í gær og 27 hjá Íslenskri erfðagreiningu. Við landamærin voru tekin 2.488 sýni.
Flestir sjúklingarnir eru í aldurshópnum 18-29 ára eða 49 og hefur fjölgað um sjö síðustu tvo sólarhringa. Sjö sjúklingar eru yfir sextugu.
Tíu hafa því greinst innanlands á tveimur sólarhringum. Þeir fjórir sem greindust í gær voru ekki í sóttkví og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði á upplýsingafundi almannavarna að þeir tengdust ekki. Sagði hann ennfremur ljóst að einkennalausir væru að smita.
Allir þeir sem greinast með COVID-19 eru í umsjá COVID-göngudeildar Landspítala. Starfsmenn hennar annast eftirlit með sjúklingunum og eftir atvikum meðferð. „Núna eru rúmlega 100 fullorðnir í eftirliti hjá okkur og um ellefu börn sem starfsfólk Barnaspítala Hringsins sinnir,“ segir Runólfur Pálsson, forstöðumaður lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítala, í ítarlegu viðtali við Kjarnann.
Undanfarið hafa sjúklingar bæst við nær daglega en síðustu daga hafa nokkrir útskrifast sem hafa náð bata samkvæmt ákveðnum skilmerkjum. „Þess vegna hefur sjúklingum í umsjá göngudeildarinnar ekki fjölgað eins mikið og annars hefði verið,“ bendir Runólfur á. Til þess að sjúklingur sé útskrifaður úr eftirliti þarf hann að hafa verið einkennalaus í sjö daga og að minnsta kosti fjórtán dagar þurfa að hafa liðið frá greiningu. Fylgst er vel með þróun einkenna, jafnvel með daglegum símtölum, ekki síst vegna þess að dæmi eru um að þau geti versnað skyndilega og að hratt geti þurft að bregðast við.
Runólfur segir að heilt yfir hafi starfsemi göngudeildarinnar gengið vel og verkefnin verið viðráðanleg það sem af er þessari bylgju faraldursins. „Það skýrist mest af því að stærsti hluti þeirra sem sýkst hafa að undanförnu er ungt fólk og að langflestir hafa haft væg einkenni.“
Frá því að fyrsta smitið var greint hér á landi í lok febrúar hafa 1.978 greinst með COVID-19. Tíu hafa látist vegna sjúkdómsins.