Lögreglan má nú sekta einstaklinga fyrir að vera ekki með grímu

Lögreglan hefur fengið auknar sektarheimildir vegna brota á sóttvarnalögum og reglum þeim tengdum, samkvæmt nýjum fyrirmælum frá ríkissaksóknara. Nú má sekta einstaklinga fyrir að vera ekki með grímu á þeim stöðum þar sem grímuskylda er í gildi.

Lögreglan hefur fengið auknar heimildir til þess að sekta fólk og forsvarsmenn fyrirtækja fyrir brot gegn sóttvarnalögum, í takt við nýjar reglur sem stjórnvöld hafa sett.
Lögreglan hefur fengið auknar heimildir til þess að sekta fólk og forsvarsmenn fyrirtækja fyrir brot gegn sóttvarnalögum, í takt við nýjar reglur sem stjórnvöld hafa sett.
Auglýsing

Lög­reglan á Íslandi hefur nú heim­ild til þess að sekta ein­stak­linga um 10 til 100 þús­und krónur fyrir að vera ekki með grímu þar sem grímunotkun er skylda. Nýjar sekt­ar­heim­ildir vegna brota gegn sótt­varna­lögum og reglum sem settar eru sam­kvæmt þeim tóku gildi 14. ágúst, sam­kvæmt fyr­ir­mælum rík­is­sak­sókn­ara.

Þá er einnig komin inn heim­ild til þess að sekta for­svar­menn fyr­ir­tækja fyrir að brjóta reglur um grímunotkun og geta þær sektir numið á bil­inu 100 til 500 þús­und krón­ur. Nú hefur lög­reglan einnig heim­ild til þess að sekta for­svars­menn starf­semi eða skipu­leggj­endur sam­komu um sömu upp­hæð ef að brotið er gegn þeirri skyldu að tryggja að hægt sé að hafa að minnsta kosti tvo metra á milli ein­stak­linga sem deila ekki heim­ili.

Þetta eru helstu breyt­ing­arnar í nýju fyr­ir­mælum rík­is­lög­reglu­stjóra hvað sekt­ar­heim­ildir varð­ar, en þar er einnig að finna sekt­ar­heim­ildir á hendum ein­stak­lingum sem brjóta skyldu varð­andi veru í sótt­kví eða ein­angr­un, sem numið geta á bil­inu 150 til 500 þús­und krón­um.

Auglýsing

Einnig er áfram hægt að beita sektum gegn bæði ein­stak­lingum sem sækja sam­komur þar sem of margir eru miðað við gild­andi tak­mark­anir og líka skipu­leggj­endum slíkra sam­koma.

Lögð áhersla á að meta hvert til­vik fyrir sig

Rík­is­sak­sókn­ari segir í fyr­ir­mælum sínum að lögð sé áhersla á að ákærendur meti hvert til­vik fyrir sig og ákvarði sekt­ar­fjár­hæð með hlið­sjón af alvar­leika brots, en ljóst sé að brotin geti verið afar mis­mun­andi og þar með mis­al­var­leg.

Fyrsta sektin fyrir brot á sótt­varna­lögum í heims­far­aldr­inum var veitt hér á landi í apr­íl­mán­uði, en þá var um ræða ein­stak­ling sem hafði ekki farið í sótt­kví eftir að hafa verið í útlönd­um. Upp komst um brot hans þegar hann var hand­tek­inn í mið­borg Reykja­víkur fyrir að láta ófrið­lega og sparka í bíla. Hann fékk 50 þús­und króna sekt.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent