Í júlí kynnti Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, nýtt slagorð í baráttunni gegn kórónuveirunni til sögunnar: Hendur, andlit, fjarlægð (e. hands, face, space). Þessi þrjú litlu orð áttu að minna landa hans á að persónulegar smitvarnir væru það mikilvægasta til að halda faraldrinum í skefjum. En slagorðið fór fyrir ofan garð og neðan enda var annað kynnt á sama tíma sem höfðaði meira til fólks sem hafði þurft að lúta ströngum samkomu- og ferðatakmörkunum mánuðum saman. Þess vegna hljómuðu hvatningarorð um að fara út að borða til að hjálpa atvinnulífinu (e. eat out to help out) mun betur enda fylgdu þeim afslættir á veitingastaði.
En nú eru stjórnvöld hætt að hvetja til kvöldverðar á veitingahúsum enda hafa þau ákveðið að herða og einfalda samkomureglur á Englandi til að reyna að draga úr mikilli fjölgun smita sem orðið hefur undanfarið. Aðeins sex mega koma saman frá og með næsta mánudegi og slagorð Johnsons, „Hendur, andlit, fjarlægð“, mun óma í öllum miðlum. Fjöldatakmarkanir hafa reyndar miðast við sex manns undanfarið en þó mega allt að þrjátíu koma saman við sérstök tilefni. Þetta hafa samkomuglaðir nýtt sér. Stóra breytingin nú er talan sex verður „töfratalan“ og lögreglan getur því brugðist við og leyst upp samkomur sem telja fleiri.
Á þremur dögum greindust 8.500 með kórónuveirusmit á Englandi. Ekki hafa svo margir greinst jákvæðir síðan í maí. Það segir þó ekki alla söguna því eins og í fyrstu bylgju faraldursins eiga Bretar erfitt með að anna sýnatökuþörf sem upp er komin og einnig er þanþol smitrakningarteymanna við hættumörk.
Yfirvöld hafa síðustu vikur gripið til þess ráðs að setja á harðar en staðbundnar reglur í þeim borgum og bæjum þar sem smitum hefur fjölgað hvað mest. Þannig bættist Bolton í þann hóp í byrjun vikunnar sem þýðir til dæmis að barir og veitingastaðir þurfa að loka klukkan tíu á kvöldin. Þá má fólk sem býr í þessum „heitu reitum“ ekki eiga í nánum samskiptum við aðra en þá sem það deilir heimili með.
Unga fólkið helst að smitast
Líkt og víðast hvar annars staðar í Evrópu er það unga fólkið sem helst er að smitast af veirunni. Enn sem komið er anna sjúkrahús vel þeim fjölda sem þurft hefur að leggja inn en óttast er að eldri ættingjar og vinir yngra fólksins verði þeir næstu sem smitast. Það myndi breyta mjög stöðunni á sjúkrahúsunum.
„Við verðum að bregðast við strax til að stöðva útbreiðslu veirunnar,“ sagði Boris Johnson í gær en í dag hefur hann boðað til blaðamannafundar þar sem farið verður gaumgæfilega yfir hinar nýju samkomutakmarkanir.
Stærri fjölskyldur mega koma saman
Enn verður þó fleira fólki en sex úr sömu fjölskyldu og þeim sem deila sama heimili heimilt að koma saman, m.a. vegna brúðkaupa, jarðarfara og annarra viðburða. Hertar reglur eiga þó aðeins við England en annars staðar á Bretlandi verða þær óbreyttar. Í Wales mega enn sem komið er þrjátíu koma saman utan dyra en fólk er almennt hvatt til að vera ekki í mikilli nánd við aðra en þá sem það deilir heimili með.