Alls greindust 33 einstaklingar með COVID-19 hér á landi í gær. Innan við helmingur smitaðra var í sóttkví við greiningu, eða 14 talsins og því voru 19 ekki í sóttkví.
Alls voru tæplega 3.000 sýni tekin í gær, að landamæraskimun meðtalinni. Þar af voru 1.225 sýni tekin úr fólki sem var með einkenni. Tuttugu og fjögur einkennasýni reyndust jákvæð, svo hlutfall smitaðra í þeim hópi var 1,96 prósent.
Fjórtan daga nýgengi smita á hverja 100.000 íbúa á Íslandi heldur áfram að hækka og er nú komið upp í 91,1.
Fjögur sýni reyndust jákvæð á landamærum, en beðið er eftir niðurstöðum úr mótefnamælingum í öllum tilfellum. Alls voru 860 sýni tekin í landamæraskimunum.
Alls eru 352 einstaklingar nú í einangrun með COVID-19 smit og tæplega 2.500 manns í sóttkví eftir að hafa verið útsett fyrir smiti, samkvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.is. Einn er innlagður á sjúkrahús vegna COVID-19
Til viðbótar eru tæplega tvö þúsund manns í sóttkví eftir að hafa komið hingað til lands undanfarna daga.