Rúmlega þrjátíu Íslendingar hafa greinst með veiruna í landamæraskimun

Af þeim 119 sem greindust með COVID-19 í landamæraskimun frá 15. júní til 18. september voru 32 með íslenskt ríkisfang, 23 frá Póllandi og 13 frá Rúmeníu og færri frá 23 ríkjum til viðbótar.

Leifsstöð
Auglýsing

Af þeim 119 sem greindust með COVID-19 í landamæra­skimun frá 15. júní til 18. sept­em­ber voru 32 með íslenskt rík­is­fang, 23 frá Pól­landi og 13 frá Rúm­en­íu, en alls greind­ist fólk frá að minnsta kosti 26 mis­mun­andi ríkjum í landamæra­skimun­inni á þessu tíma­bili, auk þess sem þjóð­erni níu ein­stak­linga voru ekki skráð.

Þetta kemur fram í svari Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Gunn­ari Braga Sveins­syni þing­manni Mið­flokks­ins sem birt hefur verið á vef Alþing­is. Gunnar Bragi spurði ráð­herra einnig út í rík­is­fang þeirra sem greinst hafa með COVID-19 eftir smit inn­an­lands, en þeim upp­lýs­ingum er ekki safn­að.

Hins vegar er lög­heim­ili þeirra skráð og þann 18. sept­em­ber höfðu 2.075 með lög­heim­ili á Íslandi smit­ast af veirunni inn­an­lands, af alls 2.113 sem þá höfðu greinst með veiruna. Síðan þá hefur fjöldi smita auk­ist mikið og nú hafa í heild­ina 2.695 manns greinst með COVID-19 inn­an­lands.

Auglýsing

Gunnar Bragi spurði ráð­herra einnig út í rík­is­fang þeirra sem væru í sótt­kví, bæði heima fyrir og í sótt­varna­húsum yfir­valda. Upp­lýs­ingum um rík­is­fang þeirra sem eru skikk­aðir í sótt­kví heima hjá sér er ekki safnað af hálfu íslenskra yfir­valda, en rík­is­föngum þeirra sem eru í sótt­varna­húsum á vegum yfir­valda er hins vegar safn­að.

Þann 15. sept­em­ber voru alls 23 ein­stak­lingar í sótt­varna­hús­um, fjórir í ein­angrun og nítján í sótt­kví. Þrír Íslend­ingar voru í þessum hópi, en flest­ir, fimm tals­ins, voru frá Palest­ín­u. 

Fjöldi þeirra sem eru í sótt­varna­húsum hefur auk­ist mikið frá því svarið var tekið saman og sam­kvæmt frétt á vef mbl.is frá því í gær voru 60 manns í sótt­varna­húsum í Reykja­vík, 46 í upp­runa­legu far­sótt­ar­húsi við Rauð­ar­ár­stíg og fjórtán til við­bótar í öðru hús­næði við sömu götu sem hefur verið á leigu til að þjóna þessu hlut­verki.

Sam­kvæmt frétt mbl.is voru flestir í far­sótt­ar­hús­unum Íslend­ingar og stór hluti yngra fólk, sem átti erfitt með að vera heima hjá sér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent