Guðni Th.: „Sýnum hvað í okkur býr“

Forseti Íslands hvetur landsmenn til samstöðu í þessari bylgju faraldursins. „Í stritinu miðju stoðar lítt að velta vöngum yfir því hvað hefði kannski mátt gera öðruvísi, ræðum það síðar,“ skrifar forsetinn á Facebook í kvöld.

Forsetinn birti með færslu sinni þessa teiknuðu mynd af honum sjálfum með grímu.
Forsetinn birti með færslu sinni þessa teiknuðu mynd af honum sjálfum með grímu.
Auglýsing

„Við erum í vanda,“ skrifar Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, í færslu á Face­book í kvöld. For­set­inn hvetur lands­menn til að kynna sér allar upp­lýs­ingar um þær hertu sótt­varn­ar­að­gerðir sem hafa verið kynntar og hvetur til sam­stöðu þjóð­ar­inn­ar.  







„Við gerðum það í vor og getum það enn. Ein­hugur kemur okkur öllum til góða en lang­mest þeim sem á því þurfa helst að halda, fólk­inu sem er veikast fyrir og þeim sem sinna sjúk­um. Í strit­inu miðju stoðar lítt að velta vöngum yfir því hvað hefði kannski mátt gera öðru­vísi, ræðum það síð­ar,“ segir for­set­inn.

Auglýsing



Hann hvetur alla til að fylgja til­mælum og leið­bein­ingum og „verða þannig að liði í þessu ágæta sam­fé­lagi okk­ar.“ 





„Sam­staða í þágu þjóð­ar, þraut­seigja í verki. Látum þetta sann­ast um okk­ur. Við erum öll almanna­varn­ir. Sýnum hvað í okkur býr,“ skrifar for­seti Íslands.

Kæru lands­menn. Við erum í vanda. Á morgun verða varnir gegn veirunni skæðu þess vegna hertar enn frek­ar. Nýjar regl­ur...

Posted by For­seti Íslands on Tues­day, Oct­o­ber 6, 2020

Ávarp­aði óþreyj­una í sam­fé­lag­inu í færslu í gær

For­set­inn skrif­aði einnig um veiruna á Face­book í gær, þar sem hann ávarp­aði þá óþreyju og jafn­vel gremju sem má merkja víða í sam­fé­lag­inu, nú þegar veiran hefur blossað upp að nýju af miklum krafti.



„Vissu­lega getur verið hægð­ar­leikur fyrir þá, sem ekki þurfa að axla ábyrgð á aðgerð­um, að benda á sitt­hvað í okkar sótt­vörnum sem mætti vera öðru­vísi, finna heim­ildir á net­inu um önnur við­brögð ann­ars staðar og þar fram eftir göt­un­um. Brýn­ast er þó að við gerum sjálf það sem í okkar valdi stendur til að halda veirunni í skefj­u­m,“ sagði for­set­inn í þeirri færslu sinni, þar sem hann sendi jafn­framt öllum þeim sem sýkst hafa bestu óskir um góðan bata og færði þeim sem eru að „glíma við þennan vágest í þágu okkar allra“ stuðn­ings­kveðj­ur.



„Við skulum öll reyna að létta þeim verkið með því að sinna okkar eigin sótt­vörnum og fara að eigin frum­kvæði og hyggju­viti eftir leið­bein­ingum og til­mælum sem gagn­ast sam­fé­lag­inu í heild. Verum hluti lausn­ar­inn­ar, ekki vand­ans,“ skrif­aði Guðni þá.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent