Tveggja metra reglan mun gilda um allt land

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum að láta hertar aðgerðir gilda með svipuðum hætti næstu 2-3 vikurnar, en unnið er að endanlegri útfærslu. Tveggja metra reglan mun taka gildi um land allt og tilmæli um íþróttastarf munu taka einhverjum breytingum.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson er starfandi heilbrigðisráðherra í fjarveru Svandísar Svavarsdóttur.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson er starfandi heilbrigðisráðherra í fjarveru Svandísar Svavarsdóttur.
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að þess megi vænta að heil­brigð­is­ráð­herra muni fram­lengja þær aðgerðir sem hafa verið í gildi und­an­farna 10 daga, þannig að þær standi næstu tvær til þrjár vik­ur. 

Þetta kemur fram í Face­book-­færslu for­sæt­is­ráð­herra, þar sem hún segir einnig að hátt hlut­fall þeirra sem voru í sótt­kví er þeir greindust með COVID-19 í gær (50 af alls 67) von­andi merki um að hertar aðgerðar séu byrj­aðar að skila árangri.

Ögn verður skerpt á þeim reglum sem hafa verið í gild­i. T­veggja metra-reglan mun gilda um allt land og til­mælum um íþrótta­starf með snert­ingu verður breytt í reglur og sömu reglur verða látnar gilda um íþróttir utandyra og inn­an­húss, sam­kvæmt því sem Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, starf­andi heil­brigð­is­ráð­herra, sagði við Vísi eftir rík­is­stjórn­ar­fund í dag. 

Auglýsing

Hann sagði að unnið væri að nákvæmri útfærslu aðgerð­anna í ráðu­neyt­inu í sam­starfi við sótt­varna­lækni og að þær ættu að liggja ljósar fyrir á morgun og taka gildi eftir helgi.

Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir skil­aði minn­is­blaði með til­lögum sínum til heil­brigð­is­ráð­herra í gær og sagði einnig á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna að það væri ekki mikið rúm fyrir til­slak­anir næstu vik­urn­ar, en þó þyrfti að skýra ýmis til­mæli sem almenn­ingur hefur fengið bet­ur.

Guð­mundur Ingi sagði við Vísi að það væri full sam­staða innan rík­is­stjórn­ar­innar um að halda hertum aðgerðum til streitu.

Í gær greindust 67 manns með kór­ónu­veirusmit en þar af voru 50 í sótt­kví. Von­andi er þetta merki um að þær hert­u...

Posted by Katrín Jak­obs­dóttir on Fri­day, Oct­o­ber 16, 2020


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent