Samherja-blokkin bætir enn við sig kvóta – heldur nú á 17,5 prósent

Útgerð í eigu Síldarvinnslunnar hefur keypt aðra útgerð sem heldur á 0,36 prósent af heildarkvóta. Við það eykst aflahlutdeild þeirra útgerðarfyrirtækja sem tengjast Samherjasamstæðunni um sama hlutfall.

Gunnþór B. Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar.
Gunnþór B. Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar.
Auglýsing

Á laug­ar­dag var und­ir­rit­aður samn­ingur um kaup útgerð­ar­fé­lags­ins Bergs-Hug­ins ehf. á útgerð­ar­fé­lag­inu Bergi ehf. í Vest­manna­eyj­um. Við þau kaup flytj­ast 0,36 pró­sent af heild­ar­kvóta yfir­stand­andi fisk­veiði­árs yfir til Bergs-Hug­ins. 

Frá þessu er greint á heima­síðu Síld­ar­vinnsl­unnar, sem á Berg-Hug­inn að öll leyti. Þar er haft eftir Gunn­þóri B. Ingva­syni, fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, að kaupin séu liður í að styrkja rekstur og útgerð þess í  Vest­manna­eyj­um. Kaupin voru gerð með fyr­ir­vara um sam­þykkt Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Kaup­verð er ekki gefið upp. 

Við kaupin fer afla­hlut­deild Bergs-Hug­inn upp í 2,7 pró­sent af heild­ar­kvóta til umráða. 

Er í 49,9 pró­sent eigu Sam­herja

Síld­ar­vinnslan, eig­andi Bergs-Hug­ins, er, beint og óbeint, í 49,9 pró­sent eigu Sam­herja. að styrkja rekstur og útgerð félags­ins í  Vest­manna­eyj­um. Lög skil­­greina aðila í sjá­v­­­ar­út­­­vegi ekki tengda nema einn eigi meiri­hluta í öðr­­um. Því eru Sam­herji og Síld­­ar­vinnslan ekki skil­­greind sem tengdir aðil­ar enda eign­ar­hlut­ur­inn eins lítið undir mörk­unum og lög heim­ila. Það eru mjög há mörk í sam­an­burði við það sem tíðkast ann­ars­staðar hér­lend­is.

Í lögum um skrán­ingu raun­veru­­legra eig­enda og í frum­varpi til laga um breyt­ingu á ýmsum lögum vegna skatt­lagn­ingar tekna erlendra lög­­að­ila í lág­skatta­­ríkj­um, sam­skött­unar félaga, tak­­mörk­unar á frá­­drætti vaxta­gjalda og skatt­lagn­ingar útsendra starfs­­manna er til dæmis miðað við 25 pró­­sent beinan eða óbeinan eign­­ar­hlut til að aðilar telj­ist tengdir eða aðili telj­ist raun­veru­­legur eig­and­i. 

Auglýsing
Kjarn­inn greindi frá því í frétta­­skýr­ingu 20. nóv­­em­ber 2019 að þegar Sam­herji kynnti sam­­stæðu sína erlendis þá var Síld­­ar­vinnslan kynnt sem upp­­­sjá­v­­­ar­hluti hennar og myndir birtar af starf­­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta sýndu glæru­kynn­ingar sem voru hluti af þeim gögnum sem Wiki­leaks birti vegna Sam­herj­­a­­máls­ins. 

Þor­steinn Már Bald­vins­son, annar for­stjóra Sam­herja, tók fyrir skemmstu aftur við stjórn­ar­for­mennsku í Síld­ar­vinnsl­unni. Hann hafði stigið tíma­bundið til hliðar sem for­maður stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins 18. nóv­­em­ber í fyrra. Skömmu áður hafði hann líka hætt sem for­­stjóri Sam­herja. Hann sett­ist aftur í þann stól 27. mars síð­­ast­lið­inn. 

Ástæður þess að Þor­­steinn Már steig til hliðar voru þær að Kveik­­­­­ur, Stund­in, Wiki­leaks og Al Jazeera birtu umfjöllun sína um við­­­­­skipta­hætti Sam­herja í Namibíu og víðar þar sem fjallað var um meintar mút­­­­u­greiðsl­­­­­ur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­­­­­göngu.

Stærsta sam­stæðan verður stærri

Sam­herj­­a­­sam­­stæðan er sú sem heldur sam­an­lagt á mestum kvóta á Ísland­i. 

­Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja hf, er með næst mesta afla­hlut­­­deild í íslenskri efna­hags­lög­­sögu allra sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 7,02 pró­­­sent. ­Út­­­­­gerð­­­­­­­ar­­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,3 pró­­­­­­­sent kvót­ans og Sæból fjár­­­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­­fé­lag, sem það sama gildir um, heldur á 0,64 pró­­­­­­­sent hans. 

Síld­­­­­­­ar­vinnslan er svo með 5,2 pró­­­sent afla­hlut­­­deild og Berg­­­ur-Hug­inn, í eigu Síld­­­ar­vinnsl­unn­­­ar, er nú með tæp­lega 2,7 pró­­­sent af heild­­­ar­kvóta til umráða. 

Auk þess á Síld­­ar­vinnslan 75,20 pró­­sent hlut í Run­ólfi Hall­freðs­­syni ehf., sem heldur á 0,62 pró­­sent af úthlut­uðum kvóta. Sam­an­lagt er þessi blokk með að minnsta kosti 17,5 pró­­­sent afla­hlut­­­deild. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent