Forseti Íslands kominn í sóttkví

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands þarf að vera í sóttkví fram til mánudagsins 9. nóvember vegna kórónuveirusmits sem greinst hefur hjá starfsmanni á Bessastöðum.

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands er kominn í sóttkví.
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands er kominn í sóttkví.
Auglýsing

Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti Íslands þarf að vera í sótt­kví fram yfir næstu helgi, til mánu­dags­ins 9. nóv­em­ber, vegna kór­ónu­veirusmits sem greinst hefur hjá starfs­manni á Bessa­stöð­um. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá for­seta­emb­ætt­inu í kvöld.

Þar segir að starfs­mað­ur­inn sem smit­ast hefur af veirunni sé nær ein­kenna­laus og að for­set­inn hafi engin ein­kenni COVID-19. Tekið er fram í til­kynn­ingu emb­ætt­is­ins að Eliza Reid for­seta­frú og börn þeirra hjóna þurfi ekki að vera í sótt­kví.

Yfir 2.000 manns í sótt­kví

For­seti Ísland bæt­ist þar með í hóp þeirra rúm­lega tvö­þús­und Íslend­inga sem nú eru í sótt­kví eftir að hafa orðið útsett fyrir mögu­legu kór­ónu­veirusmiti. Til við­bótar eru alls 859 manns nú í ein­angrun á land­inu öllu með virkt smit COVID-19, sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vefnum covid.­is.

Auglýsing

Sjö­tíu og fjórir ein­stak­lingar eru nú inn­lagðir á sjúkra­hús vegna sjúk­dóms­ins og hafa þeir aldrei verið fleiri en um þessar mund­ir. Fjórir eru á gjör­gæslu­deild, en alls hafa 17 manns lát­ist eftir að hafa smit­ast af COVID-19 síðan að kór­ónu­veiran lét fyrst á sér kræla hér á landi í lok febru­ar. 

Þar af hafa sjö lát­ist und­an­farnar vik­ur, í svo­kall­aðri þriðju bylgju far­ald­urs­ins, sem nú geisar og hefur leitt til þess að stjórn­völd hafa gripið til ströng­ustu sam­komu­tak­mark­ana í lýð­veld­is­sög­unni, með það að mark­miði að hægt sé að hægja á vexti far­ald­urs­ins eins og hægt er.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent