Góð teikn á lofti en fólk hvatt til að „ferðast innanhúss“ um helgina

Sóttvarnalæknir segir góð teikn á lofti um þróun faraldursins, en lítið megi þó út af bregða, hópsmit gætu enn blossað upp. Almannavarnir hvetja fólk til að fara ekki í ferðalög um helgina. Einn einstaklingur á tíræðisaldri lést á Landspítala í gær.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á fundinum í dag.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á fundinum í dag.
Auglýsing

Ein­ungis fimm manns greindust utan sótt­kvíar á land­inu í gær, en alls voru smitin 25 tals­ins. Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir sagði ánægju­legt að sjá hve fáir voru utan sótt­kvíar við grein­ingu, á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag.

Hlut­fall jákvæðra sýna fer einnig lækk­andi og Þórólfur sagði góð teikn á lofti um að far­ald­ur­inn væri á nið­ur­leið, þó lítið mætti út af bregða, ný hópsmit gætu enn blossað upp. 

Þjóðin ferð­ist inn­an­húss um helg­ina

Þórólfur sagði að enn ætti eftir að sjást meiri árangur af þeim hertu aðgerðum sem tóku gildi á land­inu öllu síð­asta laug­ar­dag og skor­aði á lands­menn um að halda áfram að taka þátt í aðgerð­un­um.  

Auglýsing

Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn sagði að und­ir­tektir almenn­ings við hertum aðgerðum hefðu verið „mjög jákvæð­ar“, en hann beindi þeim til­mælum til allra lands­manna í dag að halda sig heima við um helg­ina og „ferð­ast inn­an­hús­s“.  

Almanna­varnir hafa áhyggjur af því að fólk sé á ferð­inni á milli lands­hluta, bæði vegna hættu á útbreiðslu smita og slysum, sem gætu sett aukið álag á heil­brigð­is­kerf­ið.

And­lát á Land­spít­ala í gær

Um 2.800 manns hafa greinst með COVID-19 hér á landi frá 15. sept­em­ber. Átta hafa lát­ist í þess­ari bylgju, en einn ein­stak­lingur á tíræð­is­aldri and­að­ist á Land­spít­al­anum í gær eftir að hafa smit­ast af COVID-19. Núna eru fjórir COVID-­sjúk­lingar inniliggj­andi á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans og alls eru 71 á sjúkra­húsi vegna COVID-­sýk­ing­ar.

Frá fundi almannavarna í dag. Mynd: Almannavarnir.



Núna eru 762 í ein­angrun með virkt smit á land­inu og sagði Þórólfur á fundi dags­ins að hið mikla álag sem hefur verið á far­sótt­ar­húsum sem Rauði kross­inn starf­rækir fari nú minnk­andi.

Til­slak­anir þurfi að vera hægar

Fram kom í máli Þór­ólfs á fund­inum að senni­lega yrði hægt að ráð­ast í til­slak­anir á þeim hörðu aðgerðum sem nú eru í gildi þann 18. nóv­em­ber næst­kom­andi og að á næstu dögum yrði farið yfir með hvaða hætti það yrði gert. Ljóst væri af feng­inni reynslu að fara þyrfti hægt í til­slak­an­ir.

Núver­andi aðgerðir gilda út 17. nóv­em­ber. Þórólfur sagð­ist að hefja að skoða það á næstu dögum hvernig hyggi­leg­ast væri að létta ein­hverjum af þeim hömlum sem nú eru í gildi í sam­fé­lag­inu.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent