Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnasviðs ríkislögreglustjóra, hefur greinst með COVID-19, samkvæmt fréttatilkynningu frá embættinu.
Smit kom upp í nærumhverfi Víðis síðdegis á mánudag og í kjölfarið fór Víðir í sóttkví. Jafnframt fór hann og hans nánasta samstarfsfólk, auk Ölmu Möller landlæknis og Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis í sýnatöku.
Sýni þeirra allra reyndust neikvæð á mánudagskvöld.
Víðir fór síðan aftur í sýnatöku í dag og reyndist sýni frá honum jákvætt. Hann finnur ekki fyrir einkennum og er kominn í einangrun.
Í ljósi þess að sýni frá Víði reyndist neikvætt á mánudag þykir ekki ástæða til þess að hans nánasta samstarfsfólk fari í sóttkví, samkvæmt tilkynningu frá embætti ríkislögreglustjóra.