Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra, segir að það sé engin ástæða til að hafa uppi stór orð um „svartan dag í réttarsögunni“ eða hafa áhyggjur af orðspori Íslands vegna niðurstöðu yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE) – líkt og stjórnarandstæðingar hafi sagt.
Þetta kemur fram í stöðuuppfærslu Bjarna á Facebook í kvöld.
Hann segir að helstu lagalegu álitamálum að íslenskum rétti hafi þegar verið svarað af Hæstarétti Íslands. Annars vegar í málum sem vörðuðu skaðabótaskyldu ríkisins gagnvart umsækjendum um stöðu dómara við Landsrétt. Hins vegar hefði verið dæmt um það, hvort skipan tiltekinna dómara sem ekki voru á lista hæfnisnefndar um 15 hæfustu, hefði áhrif á niðurstöður þeirra mála sem þeir höfðu dæmt.
Sýnist ekki þurfa að gera sérstakar ráðstafanir
„Hæstiréttur Íslands, æðsti dómstóll landsins, hefur þannig komist að skýrri niðurstöðu um þetta mikilvæga álitamál. Fyrirfram var ljóst að þetta gat ekki breyst með dómi MDE því dómendur á Íslandi skulu í embættisverkum sínum fara einungis eftir lögunum, líkt og segir í stjórnarskránni. Niðurstöður MDE eru ekki bindandi, ganga ekki framar íslenskum lögum. Reyndar hefur fyrir minn smekk of lítið verið fjallað um inntak þeirrar þjóðréttarlegu skuldbindingar sem felst í aðild Íslands að MSE. Í dóminum er komið aðeins inn á þetta atriði og bent á að ríki skuli, eftir atvikum, gera ráðstafanir til að bæta úr ágöllum í samræmi við niðurstöður dómsins.
Í þessu tilviki sýnist mér, í þessu samhengi, ekki þurfa að gera neinar sérstakar ráðstafanir, m.a. vegna þess að þessi lög, þetta fyrirkomulag við skipan Landsréttar, var einskiptis atburður. Þó er sjálfsagt að dómsmálaráðuneytið leggi á þetta mat og bregðist við ef ástæða þykir til. Það breytir ekki hinu að ekkert fær haggað niðurstöðu Hæstaréttar sem rakin er að framan,“ skrifar Bjarni.
Hann telur jafnframt að í pólitískum átökum um skipan Landsréttar gleymist oft að ræða málið sjálft. „Kannski gleymist það ekki. Það hreinlega hentar ekki málstað sumra að ræða málefnalega um niðurstöðuna. Þetta er augljóst af upphrópunum nokkurra úr stjórnarandstöðunni í dag.
Það eru óumdeild grundvallarréttindi í lýðræðisþjóðfélagi að geta látið reyna á lagalega stöðu sína fyrir hlutlausum dómstólum. Í þessu tiltekna máli vildi einstaklingur, sem dæmdur hafði verið fyrir ölvunarakstur, og reyndar játað brot sitt, spyrja dómstólana hvort hann hefði fengið að njóta þeirra grundvallarréttinda sem honum erum tryggð í stjórnarskrá og við Íslendingar höfum skuldbundið okkur til að fylgja að þjóðarrétti.“
Engar bætur greiddar
Þá segir Bjarni að í málinu hafi verið látið reyna á það hvort annmarkar við skipan Landsdóms hefðu mögulega áhrif á réttarstöðu hins dæmda. Hvort hann ætti rétt á ómerkingu dómsins. Til vara krafðist hann sýknu, þótt hann hefði játað brot sitt.
„Málið tapaðist í Hæstarétti. Og í dag var bótakröfu hans hafnað af MDE. Ekki verður því annað séð en að staða hans sé, eftir alla þessa málsmeðferð, hin sama og eftir dóm Landsréttar. Dómur Landsréttar stendur óraskaður. Í því er ekkert óvænt. Það lá fyrir strax í maí 2018. Og í dag varð ljóst að engar bætur verða greiddar.
Þessi niðurstaða málsins virðist ekki skipta suma neinu máli. En þetta mál snerist nú samt fyrst og fremst um þetta allan tímann,“ skrifar hann að lokum.
MDE ekki æðsti dómstóll Íslands
Bjarni sagði í samtali við RÚV þegar málflutningur fór fram fyrir yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu febrúar fyrr á árinu að Hæstiréttur Íslands yrði áfram æðsti dómstóll landsins burt séð frá niðurstöðu yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu. Hann fullyrti að niðurstaðan í málinu hefði ekki bein réttaráhrif á Íslandi.
„En það sem mér finnst skorta á í umræðunni á Íslandi er að menn geri sér grein fyrir því að þetta er ekki æðsti dómstóll Íslands. Það er Hæstiréttur á Íslandi, hann er bundinn að íslenskum lögum og hann hefur dæmt um þetta mál eftir íslenskum lögum þannig að það mun ekki breytast eftir því hvernig niðurstaðan fer út í Strassborg,“ sagði hann.