Fyrsta farþegaflug MAX-vélar í 20 mánuði lenti heilu og höldnu

Farþegar í stuttu innanlandsflugi í Brasilíu í dag gerðu sér fæstir grein fyrir því að þeir væru að taka þátt í sögulegri stund, þegar þeir hófust á loft í fyrsta farþegaflug Boeing MAX-þotu síðan í mars 2019.

737-MAX vélarnar hafa verið kyrrsettar á heimsvísu
737-MAX vélarnar hafa verið kyrrsettar á heimsvísu
Auglýsing

Boeing 737 MAX-þota brasil­íska lággjalda­flug­fé­lags­ins Gol lenti heilu og höldnu í Porto Alegre, eftir 90 mín­útna flug­ferð frá Sao Paulo fyrr í dag. Um var að ræða fyrsta far­þega­flug þotu af gerð­inni Boeing 737 MAX síðan í mars árið 2019. 



Þá voru vél­arnar kyrr­settar á heims­vísu í kjöl­far tveggja mann­skæðra flug­slysa sem rakin voru til gall­aðs hug­bún­aðs í vél­un­um.

AFP-frétta­stofan segir frá þessu í dag, en blaða­menn þaðan var um borð í flug­inu í Bras­ilíu í morg­un. Segir í frá­sögn þeirra að fæstir far­þeg­anna hafi gert sér ráð fyrir að þarna væri um að ræða sögu­legan við­burð. 

Auglýsing

„Ef hún er kom­in, þá hlýtur það að þýða að hún sé örugg, er það ekki?“ spurði einn maður eftir að blaða­maður tjáði honum að um væri að ræða fyrsta far­þega­flugið með þotu af þess­ari gerð í heila 20 mán­uði.

MAX-­vél­arnar fengu flug­leyfi frá banda­rískum flug­mála­yf­ir­völdum í nóv­em­ber­mán­uði, en þar í landi hafa ein­ungis farið fram prufuflug án far­þega til þessa. 

Brasil­ísk flug­mála­yf­ir­völd hafa einnig veitt þeim flug­leyfi að nýju. Vinna stendur yfir hjá evr­ópskum flug­mála­yf­ir­völdum við að meta vél­arn­ar.

Búnir að panta 95 þotur til við­bótar

Gol, sem er stærsta inn­an­lands­flug­fé­lag lands­ins, reið á vaðið og varð fyrsta flug­fé­lag heims til að taka vél­arnar aftur inn í flug­á­ætlun sína. 

Brasil­íska félagið hefur sent 140 flug­menn sína á nám­skeið til Boeing til þess að fá þjálfun og kynn­ingu á þeim upp­færslum sem gerðar hafa verið á MAX-­vél­unum af hálfu Boeing.

Gol ætlar að vera búið að taka allar sjö MAX-­vélar fyr­ir­tæk­is­ins í notkun fyrir enda þessa árs, en til við­bótar hefur flug­fé­lagið lagt inn pöntun á 95 þotum af þess­ari gerð til við­bótar og bíður þess sömu­leiðis að fá 20 slíkar sem þegar hafa verið keyptar sendar frá Banda­ríkj­un­um. 

Icelanda­ir ger­ir ráð fyr­ir því að MAX-­­vél­­­arn­ar verði hluti af áætl­­­un flug­­­­­fé­lags­ins næsta vor, sam­­kvæmt fjár­­­festa­til­kynn­ingu þeirra við síð­­asta hluta­fjár­­út­­­boð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent