1.200 skammtar af bóluefni Moderna væntanlegir á morgun

Fyrstu skammtarnir af bóluefni Moderna gegn COVID-19 eru væntanlegir til landsins á morgun. Fleiri skammtar munu svo berast reglulega næstu vikur.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Auglýsing

„Það hefur gengið vel yfir helg­ina,“ sagði Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir við upp­haf upp­lýs­inga­fundar almanna­varna í dag. Þrír greindust með veiruna í gær og voru þeir allir í sótt­kví.



Hins vegar greindust sautján á landa­mær­unum sem er áhyggju­efni að sögn sótt­varna­læknis en end­ur­speglar vöxt­inn í far­aldr­inum erlend­is.



Í ljósi stöð­unnar inn­an­lands hefur Þórólfur því sent ráð­herra til­lögur um ýmsar til­slak­anir frá og með mið­viku­deg­in­um. Þá mega 20 koma saman og til­slak­anir eru einnig gerðar á ýmissi starf­semi, svo sem heilsu­rækt með skil­yrðum og menn­ing­ar­starf­semi sömu­leið­is. Þórólfur lagði hins vegar áherslu á, og það gerði Alma Möller land­læknir einnig, að allir ættu að forð­ast ónauð­syn­legar hópa­mynd­an­ir. Enn er grímu­skylda og tveggja metra regl­una skal virða áfram.

Auglýsing


Aukn­ing í smitum sem eru að grein­ast á landa­mær­unum er að mati sótt­varna­læknis „helsta hættan sem steðjar að okkur núna, að við fáum smit inn í landið í gegnum landa­mær­in“.



Þórólfur hefur því sent heil­brigð­is­ráð­herra til­lögur um hertar aðgerðir á landa­mær­unum eins og fram hefur komið í fréttum um helg­ina. Hann lagði til að ferða­menn fengju ekki lengur val um að sleppa skimun og fara í fjórtán daga sótt­kví. Ef því væri ekki við­komið skal fólk sem velur sótt­kví að taka hana út í sótt­varna­hús­um. Þá hefur Þórólfur lagt til að börn sem komi með for­eldrum sínum til lands­ins verði skylduð til að dvelja í sótt­kví ásamt for­eldrum sín­um.



Í fjórða lagi verði aukið eft­ir­lit með fólki í sótt­kví og ein­angrun „og á þann hátt munum við reyna að tryggja eins og hægt er að aukn­ing verði ekki í smitum erlendis frá“. Hann sagði að fólki yrði gefnar skýr­ari og betri leið­bein­ingar og að hringt yrði oftar í fólk til að kanna hvernig gangi. Ef ástæða þykir er svo hægt að senda eft­ir­lits­fólk til fólks í sótt­kví og ein­angrun til að kanna stöð­una.  



Þórólfur sagði einnig ástæðu til þess að hvetja alla Íslend­inga til að fara ekki í ferða­lög erlendis að nauð­synja­lausu.

Fleiri skammtar á leið­inni



Von er á 1.200 skömmtum af bólu­efni lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Moderna til lands­ins á morg­un. Þeir skammtar verði nýttir til að halda áfram bólu­setn­ingu fram­línu­starfs­fólks. Í fram­hald­inu er von á 1.200 skömmtum frá fyr­ir­tæk­inu reglu­lega næstu vik­urn­ar. Bólu­setja þarf tvisvar með efn­inu og því duga 1.200 skammtar til að bólu­setja 600 manns.



Auk þess er von á tæp­lega 3.000 skömmtum bólu­efnis frá Pfiz­er-BioNtech í næstu viku og tæp­lega 2.000 eftir tvær vik­ur. Þessir skammtar verða not­aðir til að halda áfram að bólu­setja eldri íbúa lands­ins.



Tvö bólu­efni til við­bótar eru til skoð­unar hjá Evr­ópsku lyfja­stofn­un­inni og í fram­hald­inu verður gefin út dreif­ing­ar­á­ætlun hvað þau varð­ar.



„Meg­in­á­skorun okkar allra núna felst í því að við­halda per­sónu­bundnum sótt­vörn­um,“ sagði Þórólf­ur. Þannig mun takast að byggja upp ónæmi með bólu­setn­ingu. Sam­hliða fram­gangi bólu­setn­ingar verður smám saman hægt að slaka meira á tak­mörk­unum en hvernig það verður nákvæm­lega gert er ekki hægt að segja til um á þess­ari stundu.





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent