Búið að samþykkja 60 umsóknir um dvalarleyfi frá tekjuháu fjarvinnufólki

Frá því að reglugerðarbreytingar gerðu fjarvinnufólki utan EES mögulegt að sækja um dvalarleyfi á Íslandi til sex mánaða hafa alls 65 slíkar umsóknir borist, nær allar frá Bandaríkjunum. 10 manns hafa komið til landsins og fengið slík dvalarleyfi útgefin.

Það var í lok október sem þessi nýja tegund af dvalarleyfum var kynnt til sögunnar, en þeir sem þau fá geta verið á Íslandi og starfað í allt að sex mánuði í fjarvinnu fyrir erlend fyrirtæki.
Það var í lok október sem þessi nýja tegund af dvalarleyfum var kynnt til sögunnar, en þeir sem þau fá geta verið á Íslandi og starfað í allt að sex mánuði í fjarvinnu fyrir erlend fyrirtæki.
Auglýsing

Útlend­inga­stofnun hefur fengið alls 65 umsóknir um vega­bréfs­á­rit­anir fyrir fólk utan EES sem vill koma til Íslands og vinna fyrir erlend fyr­ir­tæki í fjar­vinnu til allt að sex mán­aða, en mögu­legt hefur verið sækja um slík dval­ar­leyfi frá því í lok októ­ber, er þrír ráð­herrar kynntu í sam­ein­ingu reglu­gerð­ar­breyt­ingar sem mið­uðu að þessu.

Sam­kvæmt svörum frá Útlend­inga­stofnun eru þessar sex­tíu og fimm umsóknir bæði frá starfs­fólki erlendra fyr­ir­tækja sem hefur hug á að koma hingað og vinna tíma­bundið og mökum þeirra og börn­um. Hingað til hafa tíu manns fengið útgefið þessa nýju teg­und dval­ar­leyfa, en dval­ar­leyfin eru ekki gefin út fyrr en fólk kemur til lands­ins.

Fimm­tíu umsóknir til við­bótar hafa verið sam­þykktar og Útlend­inga­stofnun er þessa dag­ana með fimm umsóknir í vinnslu. 95 pró­sent þess­ara umsókna eru frá Banda­ríkj­un­um, en þær fáu sem eftir standa eru frá Kanada­mönnum og Bret­um. Fyrst var sagt frá þessu á nýsköp­un­ar- og tækni­vefnum Northstack í gær.

Það var í lok októ­ber sem þessi nýja teg­und af dval­ar­leyfum var kynnt til sög­unn­ar, en þeir sem þau fá geta verið á Íslandi og starfað í allt að sex mán­uði fyrir erlend fyr­ir­tæki. Fjar­vinnu­starfs­menn­irnir geta tekið fjöl­skyldur sínar með sér án þess að þurfa að færa lög­heim­ili sitt eða öðl­ast íslenska kenni­tölu. 

Þessi fjar­vinnu­starfs­menn greiða því ekki skatta og eiga ekki rétt á neinni end­ur­gjalds­lausri þjón­ustu frá hinu opin­bera hér á landi. Komi börn á skóla­skyldu­aldri með í för þarf að sýna fram á að þau séu í fjar­námi að utan, fái heima­kennslu eða fá sam­þykki um að koma þeim að í skólum hér á landi.

Auglýsing

Stjórn­völd ákváðu að opna á þennan mögu­leika til þess að reyna að fá til lands­ins sér­fræð­inga í fjar­vinnu sem gætu tengst nýsköp­un­ar­um­hverf­inu hér á landi, en hug­myndin kom upp í kjöl­far þess að fyrsta bylgja COVID-19 far­ald­urs­ins skall á að fjöldi fyr­ir­tækja í Banda­ríkj­unum og víðar opn­aði á að fólk gæti unnið sína vinnu að heima.

Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dóttir ferða­mála-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra hafði frum­kvæði að verk­efn­inu og vann ráðu­neyti hennar að því í sam­vinnu við dóms­­­mála­ráðu­­­neyt­ið, fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráðu­­­neytið og Skatt­inn og fleiri að útfæra þessa nýju heim­ild.

Til skoð­unar að bjóða upp á lengra fjar­vinnu­dval­ar­leyfi

Verið er að skoða hvort hægt sé að bjóða upp á enn lengri dvöl hér á landi, en til þess þarf frek­ari laga- og reglu­gerð­ar­breyt­ingar en ráð­ist hefur verið í til þessa.

Sam­kvæmt svörum frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu við fyr­ir­spurn Kjarn­ans lagði Þór­dís Kol­brún til við rík­is­stjórn­ina á fundi hennar í gær að farið yrð­i í vinnu við að útfæra heim­ild fyrir erlenda sér­fræð­inga til að dvelja hér á landi og stunda vinnu sína fyrir erlend fyr­ir­tæki í fjar­vinnu í lengri tíma en 6 mán­uði. Ráð­herra lagði til að atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið myndi halda utan um vinn­una og miðað er við að til­lögur um nauð­syn­legar laga- og reglu­gerð­ar­breyt­ingar verði lagðar fram í rík­is­stjórn eigi síðar en 7. maí.

Íslands­stofa hefur farið í grein­ing­ar­vinnu á þessu máli að und­an­förnu. Í þeirri vinnu hefur komið í ljós að breið­ari hópur hefur áhuga á að koma hingað til lands til að stunda vinnu sína fyrir erlendan aðila í fjar­vinnu en getur það í dag.

Einnig kom fram í þess­ari vinnu Íslands­stofu að sníða þyrfti van­kanta af og stytta umsókn­ar­fer­ið, gera mökum þess­ara aðila kleift að starfa hér á landi og huga að skattaum­hverf­in­u. 

„Ljóst er að fleiri ráðu­neyti og aðilar þurfa að koma að verk­efn­inu ef heim­ila á þessum aðilum dvöl hér á landi í lengri tíma en 6 mán­uði, þ.e. dóms­mála­ráðu­neyti, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti, félags­mála­ráðu­neyti, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti, sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráðu­neyti auk atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is, Útlend­inga­stofn­un­ar, Skatts­ins, Vinnu­mála­stofn­unar og Íslands­stofu,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um þetta mál­efni.

Miðað að hátekju­fólki í fjar­vinnu

­At­hygli vakti þegar reglu­gerð­ar­breyt­ing­arnar voru kynntar að fólk þarf að vera tölu­vert tekju­hátt til þess að eiga kost á því að sækja um dval­ar­leyfi í fjar­vinnu, en þeir útlend­ingar sem sækja um lang­­tíma­­vega­bréfs­á­­ritun til að stunda hér fjar­vinnu að vera með erlendar tekjur sem sam­svara að minnsta kosti einni milljón króna á mán­uði. Ef maki við­kom­andi er með í för þá þarf fjar­vinnu­starfs­maður að sýna fram á tekjur upp á að minnsta kosti 1,3 millj­­ónir króna á mán­uði.

Fólk þarf að sýna fram á ráðn­ing­ar­sam­band eða verk­efna­samn­inga, starfi það sjálf­stætt. Einnig þarf fólk að sýna fram á að það hafi ýmist íslenskar eða erlendar sjúkra­trygg­ingar allan þann tíma sem það ætlar að dvelja á Íslandi.

Þór­­­dís Kol­brún sagði í til­­­kynn­ingu um mál­ið í októ­ber að til að byggja upp útflutn­ings­­­greinar byggðar á hug­viti þyrfti að búa til umhverfi, suð­u­pott fólks með hug­­­myndir og hæfni sem kynnist, lærir af hvert öðru, og býr til tæki­­­færi fram­­­tíð­­­ar­inn­­­ar.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir. Mynd: Bára Huld Beck.

„Við höfum upp á mikið að bjóða fyrir erlenda sér­­­fræð­inga og getum lært mikið af þeim. Einn helsti veik­­­leiki íslenska nýsköp­un­­­ar­um­hverf­is­ins eru teng­ingar okkar við útlönd. Með því að hvetja fjar­vinn­u­­­fólk til að koma til Íslands erum við að minnka heim­inn og búa til mik­il­vægar teng­ingar sem ann­­­ars væri erfitt að koma á. Nú höfum við stigið þetta mik­il­væga skref en ætlum að halda áfram vinnu við að stíga enn stærri skref svo við getum boðið upp á enn lengri dvöl íslensku sam­­­fé­lagi til hags­­­bóta,“ sagði ráð­herra í til­kynn­ingu.

Í svörum til Kjarn­ans öllu fyrr, eða í byrjun júní, sagði Þór­dís Kol­brún að hún teldi vel koma til greina að verja fé til þess að kynna fyrir umheim­inum að sér­fræð­ingum stæði til boða að koma til Íslands og starfa í fjar­vinnu.

„Eftir að búið er að kort­­leggja ferlið og sjá hvaða breyt­ingar þarf að gera til að hafa það sem ein­fald­­ast og skil­­virkast þurfum við að koma því til skila og búa til ein­hvers konar leið­­ar­­vísi þar sem við­kom­andi er leiddur í gegnum ferl­ið. Ekki síst að huga að mark­aðs­­setn­ingu á Íslandi sem fjar­vinn­u­landi. Þar þyrfti að ein­blína á hvað er ein­stakt og spenn­andi við að koma hingað og hvað við höfum fram að færa. Að búa á Íslandi er lottó­vinn­ingur og fyrir sér­­fræð­inga í alþjóð­­legum tækn­i­­fyr­ir­tækjum getum við boðið upp á mikil lífs­­gæði. Þar mætti auð­vitað nefna nátt­úr­una en einnig líka til dæmis gott aðgengi að leik- og grunn­­skólum sem er oft meiri risa bónus fyrir barna­­fólk en við kannski áttum okkur á fyrir utan frá­­­bært heil­brigð­is­­kerfi, virkt menn­ing­­ar­líf, frið og ró,“ sagði Þór­­dís Kol­brún.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent