Dauðsföllum vegna COVID-19 fækkaði um 20 prósent milli vikna

Bæði dauðsföllum vegna COVID-19 og nýjum tilfellum af sjúkdómnum fer fækkandi á heimsvísu. Í síðustu viku greindust 2,4 milljónir nýrra smita, 11 prósentum minna en í vikunni á undan.

Harðar takmarkanir víða um lönd sem og bólusetningarherferðir hafa skilað því að smitum og dauðföllum vegna COVID-19 fer hratt fækkandi.
Harðar takmarkanir víða um lönd sem og bólusetningarherferðir hafa skilað því að smitum og dauðföllum vegna COVID-19 fer hratt fækkandi.
Auglýsing

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) segir í til­kynn­ingu á vef sínum að dauðs­föllum vegna COVID-19 á alþjóða­vísu hafi fækkað um 20 pró­sent í síð­ustu viku miðað við vik­una á und­an. Þá hefur nýjum til­fellum af sjúk­dómnum fækkað sex vikur í röð og um 11 pró­sent milli tveggja síð­ustu vikna.



Í síð­ustu viku greindust 2,4 millj­ónir nýrra til­fella af COVID-19 í heim­inum sam­kvæmt opin­berum gögnum sem WHO vísar til. Dauðs­föll vegna sjúk­dóms­ins voru 66 þús­und á alþjóða­vísu.



Frá upp­hafi far­ald­urs­ins hafa 110,7 milljón til­felli greinst og 2,4 millj­ónir manna lát­ist vegna COVID-19.

Auglýsing


Tvennt skýrir þetta fyrst og fremst. Hin mikla bylgja far­ald­urs­ins sem kom í kjöl­far jóla og ára­móta er í rénun vegna hertra tak­mark­ana víðs­vegar um heim­inn. Þá eru bólu­setn­ingar hafn­ar, sér­stak­lega í Evr­ópu og Banda­ríkj­un­um, sem talið er að hafi þegar haft áhrif á útbreiðslu far­ald­urs­ins.



Enn eru flest smitin að grein­ast í Banda­ríkj­unum en þó fækk­aði þeim um heil 29 pró­sent á milli vikna. Á Ind­landi hélt nýjum til­fellum hins vegar áfram að fjölga á sama tíma­bili eða um 10 pró­sent.



Smitum í Evr­ópu fækk­aði um sjö pró­sent milli vikna og dauðs­föllum um 19 pró­sent.

WHO varar í viku­legu frétta­bréfi sínu sér­stak­lega við nýjum afbrigðum veirunn­ar, afbrigðum sem smit­ast meira en önnur og hafa jafn­vel þá eig­in­leika að kom­ast fram­hjá ónæm­is­vörnum lík­am­ans og vís­bend­ingar eru um að fólk sem sýkst hefur af öðrum og eldri afbrigðum veirunnar geti sýkst aft­ur. 

Yfir 500 þús­und afbrigði hafa greinst af veirunni í heim­in­um. Þau afbrigði sem vekja áhyggjur hafa stökk­breyt­ingar í gadda­pró­tín­inu sem veldur því að veiran kemst auð­veldar inn í frumur lík­am­ans. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent