Í nýrri reglugerð um samkomutakmarkanir sem tekur gildi á miðnætti í kvöld verður kveðið á um að einungis 50 manns megi vera í sama rýminu. Allt að 500 manns mega þó koma saman í hverju sóttvarnarhólfi á viðburðum þar sem krafist er hraðprófa.
Veitingahús og barir þurfa að loka dyrum sínum kl. 22 og koma öllum gestum út fyrir kl. 23 á kvöldin og fjöldi gesta í sundlaugum og líkamsræktarstöðum verður takmarkaður við 75 prósent af leyfilegum fjölda samkvæmt starfsleyfi.
Þetta tilkynnti Svandís Svavarsdóttir eftir ríkisstjórnarfund í dag. Gert er ráð fyrir að þessar aðgerðir verði í gildi í þrjár vikur, eða til og með 8. desember.
Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu um þessar aðgerðir segir að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telji harðar sóttvarnaaðgerðir nauðsynlegar á meðan að unnið sé að því að ná víðtæku ónæmi í samfélaginu með örvunarbólusetningum, sem þegar séu hafnar. Gert er ráð fyrir því að boða um 160 þúsund manns í örvunarbólusetningu fyrir áramót.
Takmarkanir sem taka gildi á miðnætti, aðfaranótt 13. nóvember:
- Almennar fjöldatakmarkanir 50 manns: Börn fædd 2016 og síðar teljast ekki með. Í þessu felst að óheimilt er að fleiri en 50 komi saman, hvort heldur inni eða utandyra, í opinberum rýmum eða einkarýmum.
- Nálægðarmörk 1 metri milli ótengdra aðila: Ef ekki er hægt að virða mörkin er skylt að nota andlitsgrímu. Þrátt fyrir þetta eru íþróttir með snertingu áfram heimilar hjá börnum og fullorðnum. Enn fremur eru leikskólabörn og nemendur í 1. til 4. bekk í grunnskóla undanþegin 1 metra reglunni.
- Grímunotkun: Skylt er að nota grímu sé ekki hægt að virða 1 metra reglu, s.s. í verslunum, almenningssamgöngum og starfsemi sem krefst nándar, t.d. á hárgreiðslustofum. Börn fædd 2006 og síðar eru undanþegin grímuskyldu.
- Fjölmennir viðburðir með notkun hraðprófa: Heimilt er að halda viðburði fyrir 500 manns í hverju sóttvarnahólfi ef allir gestir fæddir 2015 og fyrr framvísa neikvæðri niðurstöðu úr hraðprófi sem má ekki vera eldra en 48 klst. Ef ekki er hægt að uppfylla 1 metra reglu skulu gestir bera grímu, að undanskildum börnum fæddum 2006 eða síðar. Heimilt er að víkja frá 1 metra reglu þegar gestir sitja en þá ber að nota grímu. Skylt er að skrá gesti í föstum sætum með nafni, kennitölu og símanúmeri. Óheimilt er að selja veitingar í hléi. Á skólaskemmtunum með hraðprófum í grunn- og framhaldsskólum er undanþága frá 1 metra reglu og grímuskyldu.
- Sund-, baðstaðir, líkamsræktarstöðvar og skíðasvæði mega taka á móti 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Börn fædd 2016 eða síðar teljast ekki með.
- Opnunartími veitingastaða o.fl.: Veitingahúsum og öðrum stöðum þar sem áfengisveitingar eru heimilar er óheimilt að hleypa inn nýjum viðskiptavinum eftir kl. 22.00 og allir gestir eiga að vera farnir hið síðasta kl. 23.00. Vínveitingar skulu aðeins bornar fram til sitjandi gesta. Skylt er að halda skrá yfir gesti. Einkasamkvæmi á stöðum með vínveitingaleyfi eru óheimil eftir kl. 23.00.
- Verslanir og söfn: Í verslunum og söfnum gilda almennar reglur um 50 manna fjöldatakmörk, 1 metra reglu og grímuskyldu. Þó er heimilt að taka á móti fimm viðskiptavinum til viðbótar á hverja 10 m² en þó aldrei fleirum en 500 að hámarki.
Takmarkanir sem gilda munu um skólastarf:
- Í skólastarfi gilda almennar reglur um 50 manna fjöldatakmörk nema börn fædd 2016 og síðar eru undanskilin. Börn fædd 2006 og síðar eru undanþegin grímuskyldu.
- Starfsfólki í leikskólum er ekki skylt að nota grímu í samskiptum við leikskólabörn.
- Kennurum í grunnskólum er heimilt að taka niður grímu eftir að sest er niður inni í skólastofum.
- Nemendum og kennurum í framhaldsskólum er heimilt að taka niður grímu eftir að sest er niður inni í skólastofum.
- Blöndun milli hópa í skólastarfi er heimil á öllum skólastigum.