Bæjarstjórinn hvetur starfsfólk leikskóla í Reykjavík til að sækja um í Kópavogi

„Í ljósi stöðunnar í Reykjavík hvet ég starfsfólk á leikskólum borgarinnar til að kynna sér þau störf sem eru í boði í Kópavogi,” segir Ásdís Kristjánsdóttir í kjölfar frétta af því að yfirmönnun hafi verið til staðar á leikskólum í Reykjavík.

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi segir skort á starfsfólki á leikskólum í Kópavogi.
Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi segir skort á starfsfólki á leikskólum í Kópavogi.
Auglýsing

Ásdís Krist­jáns­dótt­ir, bæj­ar­stjóri í Kópa­vogi, hvetur starfs­fólk á leik­skólum Reykja­vík­ur­borgar til að sækja um lausar stöður í Kópa­vogi í færslu sem hún birti á Face­book. Hún segir skort á starfs­fólki, fag­lærðu og ófag­lærðu, meg­in­á­stæðu þess að börn kom­ast ekki fyrr inn á leik­skóla í Kópa­vogi.

Til­efni færsl­unnar er meint yfir­mönnun á leik­skólum í Reykja­vík. Í frétta­til­kynn­ingu sem skóla- og frí­stunda­svið Reykja­víkur sendi frá sér á mið­viku­dag kemur fram að leik­skólar borg­ar­innar hafi verið yfir­mann­aðir vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs. Í til­kynn­ing­unni, sem send var fjöl­miðlum í gær seg­ir: ​„Það er mat skóla- og frí­stunda­sviðs að leik­skólar Reykja­vík­ur­borgar hafi á árinu 2021 verið yfir­mann­aðir um 1 til 2 stöðu­gildi á leik­skóla en sam­tals eru borg­ar­reknir leik­skólar 68. Á þessu ári var jafn­framt yfir­mönnun vegna hólf­unar og aðgerða í leik­skólum vegna Covid í upp­hafi árs og eru vís­bend­ingar um að ennþá sé eitt­hvað um yfir­mönnun sé tekið mið af rekstr­ar- og mönn­un­ar­lík­ani leik­skóla.​“

Frétta­til­kynn­ingin var send í kjöl­far þess að í áætl­unum borg­ar­inn­ar, sem kynntar voru með til­kynn­ingu til Kaup­hallar á mánu­dag, kom meðal ann­ars fram að stöðu­gildi í leik­skólum yrðu færri á næsta ári heldur en á þessu ári.

Auglýsing

Fjölga þurfti starfs­mönnum „um­fram það sem hefð­bundið er“

Þessi breyt­ing er útskýrð nánar í frétta­til­kynn­ingu borg­ar­innar þar sem segir að ástæða þess að gert sé ráð fyrir færri stöðu­gildum á næsta ári en þessu ári sé að „starfs­mönnum var bætt við á leik­skólum borg­ar­innar vegna sótt­varn­ar­reglna sem gerðu ráð fyrir hólfun á vinnu­stöð­um. Þess vegna fjölg­aði starfs­fólki leik­skóla á árunum 2020-2022 en dregst nú lítið eitt saman milli ára.“

Enn­fremur segir að leik­skólar Reykja­víkur eins og aðrar stofn­anir hafi þurft að glíma við óvenju­legar aðstæður í starf­semi sinni síð­ustu tvö árin sökum heims­far­ald­urs. „Til að halda leik­skólum opnum og tryggja þjón­ustu við barna­fjöl­skyldur í borg­inni, var m.a. farið í hólfanir og aðrar aðgerðir sem leiddu til þess að fjölga þurfti starfs­mönnum umfram það sem hefð­bundið er í venju­legu árferð­i.“

Ásdís vísar í þessar fréttir af fækkun stöðu­gilda í leik­skólum í Reykja­vík í færslu sinni. „Á leik­skólum Kópa­vogs er skortur á starfs­fólki, fag­lærðu og ófag­lærðu, megin ástæða þess að börn kom­ast ekki fyrr inn á leik­skóla bæj­ar­ins. Nú skyndi­lega virð­ist slíkur vandi ekki vera til staðar í Reykja­vík heldur þver­öf­ugt, leik­skólar borg­ar­innar eru ofmann­að­ir! Biðlist­arnir í Reykja­vík eru samt enn lang­ir. Í ljósi stöð­unnar í Reykja­vík hvet ég starfs­fólk á leik­skólum borg­ar­innar til að kynna sér þau störf sem eru í boði í Kópa­vog­i,“ segir í færslu bæj­ar­stjór­ans.

Í til­kynn­ing­unni frá borg­inni kemur fram að áætlun árs­ins 2023 muni taka breyt­ing­um, hún byggi á fjölda barna í leik­skólum borg­ar­innar í byrjun sept­em­ber 2022. Verði breyt­ingar á barna­fjölda eða nýr leik­skóli opni, þá verði þá bæt­ist við grunn­á­ætl­un­ina sem birt var í vik­unni. Verið sé að yfir­fara mönnun allra stofn­ana í sam­an­burði við mönn­un­ar­líkön og fjár­heim­ild­ir.

Á leik­skólum Kópa­vogs er skortur á starfs­fólki, fag­lærðu og ófag­lærðu, megin ástæða þess að börn kom­ast ekki fyrr inn á...

Posted by Ásdís Krist­jáns­dóttir on Thurs­day, Novem­ber 3, 2022

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent