Bankasýslan ósammála Ríkisendurskoðun og segir skýrslu „afhjúpa takmarkaða þekkingu“

Bankasýsla ríkisins hafnar gagnrýni sem Ríkisendurskoðun hefur sett fram á undirbúning og framkvæmd á sölu á hlut í Íslandsbanka. Stofnunin telur Ríkisendurskoðun sýna „takmarkaða reynslu af sölu hlutabréfa“ og ætlar að birta málsvörn á vefsíðu sinni.

Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, og Jón Gunnar Jónsson, forstjóri stofnunarinnar.
Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, og Jón Gunnar Jónsson, forstjóri stofnunarinnar.
Auglýsing

„Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar eru ábend­ingar um atriði í und­ir­bún­ingi og fram­kvæmd söl­unnar sem að mati stofn­un­ar­innar hefðu betur mátt fara. Banka­sýsla rík­is­ins er ósam­mála Rík­is­end­ur­skoðun um flest þessi atriði sem sum hver afhjúpa tak­mark­aða þekk­ingu stofn­un­ar­innar á við­fangs­efn­in­u.“

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í til­kynn­ingu frá Banka­sýslu rík­is­ins sem send var til fjöl­miðla síð­degis í dag. 

Í skýrslu Rík­­is­end­­ur­­skoð­un­­ar, sem birt var í dag, var sölu­­ferlið á Íslands­­­banka gagn­rýnt harka­­lega. Stofn­unin segir fjöl­þætta ann­­marka hafa verið á söl­unni. Í nið­­ur­­stöðu hennar segir að standa hefði átt betur að söl­unni og hægt hefði verið að fá hærra verð fyrir hlut­inn í bank­an­­um. Ákveðið var að selja á und­ir­verði til að ná fram öðrum mark­miðum en lög­­bundn­­um. Hug­lægt mat réð því hvernig fjár­­­festar voru flokk­aðir og orð­­spor­s­á­hætta af sölu­­ferl­inu var van­­met­in.

Auglýsing
Bankasýslan segir hins vegar að fjár­hags­leg nið­ur­staða sölu­ferl­is­ins á 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka hafi verið rík­is­sjóði afar hag­felld, en fyrir hlut­inn feng­ust 52,65 millj­arðar króna. Ekk­ert í stjórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­unar hnekki því mati, að sögn Banka­sýsl­unn­ar. 

Hún gengst þó við þeirri gagn­rýni sem fram kemur í skýrsl­unni að betur hefði mátt standa að kynn­ingu á útboð­inu til almenn­ings en tekur þó fram að fram­kvæmd söl­unnar hafi verið kynnt vel fyrir Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og við­eig­andi þing­nefnd­um.

Segir ekki hafa skort á gagn­sæi eða upp­lýs­inga­miðlun

Banka­sýslan hafnar því mati Rík­is­end­ur­skoð­unar að til­boðs­fyr­ir­komu­lag­ið, sem beitt var við söl­una á hlutnum til 207 fjár­festa í lok­uðu útboði, sam­rým­ist illa starfs­háttum opin­berrar stjórn­sýslu og seg­ist ekki sjá að skort hafi á gagn­sæi og upp­lýs­inga­miðlun í aðdrag­anda söl­unn­ar.  

Þá segir stofn­unin að því sé rang­lega haldið fram í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar að Banka­sýslan hafi ekki verið nægi­lega með­vituð um heild­ar­eft­ir­spurn fjár­festa þegar ákvörðun um leið­bein­andi loka­verð var tek­in. „Full­yrð­ing Rík­is­end­ur­skoð­unar um þetta atriði sam­ræm­ist ekki gögnum máls­ins.“

Á meðal þess sem Rík­is­end­ur­skoðun gagn­rýndi var að hægt hefði verið að fá hærra verð fyrir hlut­inn í bank­anum en það sem selt var á. Til­­­boð bár­ust í allan eign­­ar­hlut­inn á dagsloka­­gengi Íslands­­­banka þann dag, 122 krónur á hlut, eða á hærra verð­i, en samt var ákveðið að selja á 117 krónur á hlut sem var 2,25 millj­örðum króna undir dagsloka­geng­inu. Sam­­kvæmt skýrslu Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar voru skýr merki um að end­an­­legt sölu­verð hafi „fyrst og síð­­­ast ráð­ist af eft­ir­­spurn erlendra fjár­­­festa“ og að frek­­ari hækkun gæti haft nei­­kvæð áhrif á þróun hluta­bréfa­verðs bank­ans að sölu lok­inni.

Þessu hafnar Banka­sýslan og segir að hvers kyns hug­myndir um um hærra verð hefðu teflt útboð­inu í tví­sýnu, „Um­sjón­ar­að­ila útboðs­ins, inn­lendir sem erlend­ir, auk sjálf­stæðra ráð­gjafa Banka­sýslu rík­is­ins, voru allir sam­mála um að loka­verð skyldi vera 117 krónur á hlut.“

Verð­ið, 4,1 pró­sent undir mark­aðsvirði, hafi auk þess verið hag­stætt í alþjóð­legum sam­an­burð­i. 

Afstaðan end­ur­spegli „tak­mark­aða reynslu af sölu hluta­bréfa“

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar er á það bent að Banka­sýsla rík­is­ins hefði þurft að ákveða áður en sölu­ferlið hófst með hvaða hætti skyldi leggja mat á til­boð ef önnur atriði en hæsta verð áttu að ráða. Æski­legt hefði jafn­framt verið að slík við­mið væru skráð og að fyrir lægi hvernig ætti að beita þeim. 

Auglýsing
Bankasýsla rík­is­ins seg­ist ekki geta tekið undir þetta. „Af­staða Rík­is­end­ur­skoð­unar sýn­ist hér end­ur­spegla tak­mark­aða reynslu af sölu hluta­bréfa [...] Engin rök hníga að því að fram­kvæmd Banka­sýslu rík­is­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hafi í þessum efn­um, fremur en öðrum, farið í bága við lög eða góða stjórn­sýslu­hætti. Stað­reynd máls­ins er sú að Banka­sýsla rík­is­ins hefur með mál­efna­legum rökum og vísan til gagna rök­stutt sér­hverja ákvörðun sem tekin var í sölu­ferl­in­u.“

Ætla að birta athuga­semdir sínar á vef­síðu sinni

Banka­sýsla rík­is­ins seg­ist hafa í skrif­legum athuga­semdum til Rík­is­end­ur­skoð­unar við drög að skýrslu stofn­un­ar­innar gert ítar­lega grein fyrir sjón­ar­miðum sín­um. „Þótt tekið hafi verið mið af ýmsum athuga­semdum í end­an­legri skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar er óheppi­legt, og varla í anda góðra stjórn­sýslu­hátta, að stofn­unin skuli ekki gera betur grein fyrir sjón­ar­miðum Banka­sýslu rík­is­ins um ein­stök atriði en raun ber vitn­i.“

Banka­sýslan ætlar því að birta athuga­semdir sínar við skýrsl­una opin­ber­lega á vef­síðu stofn­un­ar­innar innan tíð­ar. Vert er að taka fram að rík­is­stjórnin hefur þegar boðað að Banka­sýsla rík­is­ins verði lögð nið­ur. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent