Fjölmargir þættir í sölunni á Íslandsbanka sem Ríkisendurskoðun rannsakaði ekki

Ríkisendurskoðun tiltekur í skýrslu sinni að það séu fjölmargir þættir í sölunni á hlut ríkisins í Íslandsbanka sem stofnunin rannsaki ekki. Stjórnarþingmenn lofuðu rannsóknarnefnd ef úttekt Ríkisendurskoðunar skildi eftir einhverjar spurningar.

Óli Björn Kárason, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á þingi í apríl að ef úttekt Ríkisendurskoðunar „dugi ekki til þá mun ég styðja það að komið verði á fót sjálf­­stæðri rann­­sókn­­ar­­nefnd.“
Óli Björn Kárason, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á þingi í apríl að ef úttekt Ríkisendurskoðunar „dugi ekki til þá mun ég styðja það að komið verði á fót sjálf­­stæðri rann­­sókn­­ar­­nefnd.“
Auglýsing

Í skýrsl­u Rík­is­end­ur­skoð­unar á sölu íslenska rík­is­ins á 22,5 pró­sent hlut í Íslands­banka í mars síð­ast­liðn­um kemur fram að stjórn­­­sýslu­út­­­tektin sem stofn­unin fram­kvæmdi sé ekki tæm­andi rann­­sókn á söl­unni á Íslands­­­banka. Þar er til að mynda ekki tekin afstaða til þess hvort rétt­­mætt hafi verið að selja hlut rík­­is­ins í bank­­anum á þeim tíma sem það var gert eða til þeirra 207 aðila sem fengu að kaupa. Það heyrir ein­fald­lega ekki undir Rík­is­end­ur­skoðun að rann­saka slíkt.

Þá er ekki tekin afstaða til þess hvort beita hafi átt annarri sölu­að­­ferð né lagt mat á hvort vinn­u­brögð umsjón­­ar­að­ila sölu­­ferl­is­ins, sölu­ráð­gjafa og sölu­að­ila, hafi verið í sam­ræmi við lög og gild­andi regl­­ur. Þar með talið er hvort söl­unni hafi verið beint að öðrum en hæfum fjár­­­fest­um, en fyrir liggur að alls 59 aðilar fengu að kaupa fyrir minna 30 millj­­­ónir króna í útboð­inu. „Það síð­­ast­­nefnda sætir eft­ir­liti Fjár­­­mála­eft­ir­lits Seðla­­banka Íslands,“ segir í skýrsl­unni en það hefur verið með ákveðna anga söl­unnar til rann­­sókn­­ar. Þar er meðal ann­­ars verið að skoða hluta­bréfa­við­­skipti í aðdrag­anda útboðs­ins á tíma þar sem fjár­­­festar áttu ekki að vita að sala á hlut í Íslands­­­banka væri yfir­­vof­and­i. Hægt er að lesa um þann anga hér.

Auglýsing
Þegar Bjarni Bene­dikts­son, fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­herra, óskaði eftir því skrif­­lega þann 7. apríl að Rík­­is­end­­ur­­skoðun myndi gera úttekt á útboði og sölu rík­is­ins á  hlutnum í Íslands­banka síð­­ast­lið­inn þá afmark­að­ist það við hvort ferlið hafi sam­­rýmst lögum og góðum stjórn­­­sýslu­hátt­­um.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­un­ar, sem birt verður síðar í dag en Kjarn­inn hefur undir hönd­um, er sölu­ferlið á Íslands­banka gagn­rýnt harka­lega. Stofn­unin segir fjöl­þætta ann­marka hafa verið á söl­unni. Í nið­ur­stöðu hennar segir að standa hefði átt betur að söl­unni og hægt hefði verið að fá hærra verð fyrir hlut­inn í bank­an­um. Ákveðið var að selja á und­ir­verði til að ná fram öðrum mark­miðum en lög­bundn­um. Hug­lægt mat réð því hvernig fjár­festar voru flokk­aðir og orð­spors­á­hætta af sölu­ferl­inu var van­met­in.

Þing­flokks­for­menn sögð­ust styðja rann­sókn­ar­nefnd

Fjöl­margir stjórn­­­ar­and­­stöð­u­­þing­­menn köll­uðu eftir því að skipuð yrði rann­­sókn­­ar­­nefnd Alþingis til að fara yfir sölu­­ferlið, en slík nefnd hefur víð­tæk­­ari heim­ild­ir en Rík­is­end­ur­skoð­un. Því var hafnað af stjórn­­­ar­­flokk­un­um, meðal ann­ars með þeim rökum að vinna þyrfti verkið hratt og því væri Rík­is­end­ur­skoðun betur til þess fallin að sinna því en rann­sókn­ar­nefnd. Skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar mun birt­ast sjö mán­uðum og sjö dögum eftir að beðið var um hana, en upp­haf­lega átti skýrslan að koma fyrir augu almenn­ings fyrir lok júní. Síð­asta rann­sókn­ar­nefnd Alþingis sem sett var sam­an, til að rann­saka aðkomu þátt­­töku þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser í kaupum á 45,8 pró­­sent eign­­ar­hlut rík­­is­ins í Bún­­að­­ar­­banka Íslands, lauk störfum sínum á innan við tíu mán­uð­um. Nið­ur­staða hennar varp­aði algjör­lega nýju ljósi á atburða­rás söl­unnar og opin­ber­aði að aðkoma Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á hlut í Bún­­­­að­­­­ar­­­­bank­­­­anum hafi verið blekk­ing. 

Orri Páll Jóhannsson, þingflokksformaður Vinstri grænna.

Þegar sá far­vegur að láta Rík­is­end­ur­skoðun gera úttekt á söl­unni í stað þess að skipa rann­sókn­ar­nefnd var til umræðu á þingi skömmu fyrir síð­ast­liðna páska komu nokkrir stjórn­ar­þing­menn í pontu og ­sögðu að þeir myndu styðja skipun rann­­sókn­­ar­­nefndar ef spurn­ingum væri ósvarað eftir að Rík­­is­end­­ur­­skoðun lyki sinni vinnu. Þeirra á meðal voru Óli Björn Kára­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, Orri Páll Jóhanns­son, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, og Ingi­björg Isaksen, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks.

Lands­menn vildu rann­sókn­ar­nefnd

Orð­rétt sagði Óli Björn í pontu á þingi þann 7. apríl síð­ast­lið­inn: „Ég hef sagt og ætla að end­­­ur­­­taka það hér að ef það verður nið­­ur­­staða þings­ins að út­­­tekt rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­anda, sem ætti ekki að taka lang­an tíma, dugi ekki til þá mun ég styðja það að komið verði á fót sjálf­­­stæðri rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd.“

Orri Páll tók í svip­aðan streng og sagði að ef hug­­mynd Bjarna um skoðun Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar á mál­inu væri ekki nóg „þá tek ég heils hugar undir með þeirri hug­­mynd að setja á fót sér­­staka rann­­sókn í mál­inu, bara heils hug­­ar. Það er allra hagur að þetta mál sé upp­­lýst ef ein­hver vafi er um ferlið þannig ég tek heils hugar undir það, svo það komi skýrt fram.“ 

Ingi­björg sagði sama dag að gefi nið­­ur­­staða Rík­is­end­ur­skoð­unar „eitt­hvert til­­efni til þess að skoða þetta enn frekar mun ekki standa á þing­­flokki Fram­­sóknar að stofna rann­­sókn­­ar­­nefnd til þess að skoða þetta.“

Í könnun sem Gallup birti í apríl síð­­ast­liðnum var meðan ann­­ars spurt að því hvort rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd Alþingis ætti að gera úttekt á söl­unni, líkt og þorri stjórn­­­­­ar­and­­­stöð­unnar hefði lagt til. Nið­­­ur­­­staðan þar var sú að 73,6 pró­­­sent lands­­­manna töldu að það ætti að skipa rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd en 26,4 pró­­­sent töldu nægj­an­­­legt að Rík­­­is­end­­­ur­­­skoðun geri úttekt á söl­unni, líkt og fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráð­herra hafði þegar falið henni að ger­a. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent