Börn í Englandi aftur í skólann en hluti ítalskra barna sendur heim

Faraldurinn sendir ýmist kaldar eða hlýjar kveðjur um Evrópu nú í upphafi nýrrar viku. Í sumum löndum er verið að aflétta takmörkunum en í öðrum er enn verið að herða.

Tvær milljónir barna í Englandi sneru aftur í skólann í morgun.
Tvær milljónir barna í Englandi sneru aftur í skólann í morgun.
Auglýsing

Í morgun fóru börn í Englandi í skól­ann á ný eftir margra vikna fjar­nám. Í Þýska­landi var hömlum aflétt á ýmissi þjón­ustu. En í Finn­landi, Ung­verja­landi og á ákveðnum svæðum á Ítalíu voru hertar aðgerðir kynntar til sög­unn­ar.

Bresk stjórn­völd hafa kynnt áætlun um hvernig hömlum verður smám saman aflétt næstu vik­urn­ar. Stór áfangi varð í dag þegar um tvær millj­ónir grunn­skóla­barna máttu aftur mæta í skól­ann. Tvær vikur eru síðan þau voru send heim og í fjar­nám. Bretar hafa í þrí­gang frá upp­hafi far­ald­urs­ins gripið til mjög harðra aðgerða.

Auglýsing

Nú hafa um 22 millj­ónir manna fengið að minnsta kosti fyrri skammt­inn af bólu­efni. Frá og með 29. mars mega allt að sex manns koma saman utandyra. Þann 12. apríl er svo stefnt að því að opna dyr bara og veit­inga­staða.

Hæg aflétt­ing er einnig að eiga sér stað í Þýska­landi. Í morgun máttu bóka­búð­ir, blóma­búðir og öku­skól­ar, svo dæmi séu tek­in, aftur fara að taka við við­skipta­vin­um. Aðeins um 5 pró­sent Þjóð­verja hafa fengið að minnsta kosti fyrri skammt bólu­efn­is­ins.

Í dag tóku hertar aðgerðir gildi á þremur svæðum á Ítal­íu. Á svæð­inu í kringum Napolí er nú „rauð­ur“ lita­kóði í gildi sem þýðir að mikil hætta á útbreiðslu er til stað­ar. Því þarf að loka börum, veit­inga­hús­um, skólum og dag­heim­il­um, svo dæmi séu tek­in.

Fyrir helgi til­kynnti ítalski heil­brigð­is­ráð­herr­ann að smittalan (R) væri komin yfir einn í fyrsta skipti í sjö vik­ur. Hann sagð­ist því ótt­ast að þriðja bylgjan væri yfir­vof­andi.

Finnar hafa séð sömu þróun og frá og með deg­inum í dag eru því barir og veit­inga­staðir lok­að­ir. Sömu sögu er að segja frá Ung­verja­landi og þar stendur til að loka skólum og versl­unum vegna fjölg­unar smita.

Á svæði í Norð­ur­-Frakk­landi hefur einnig verið gripið til stað­bund­inna og harð­ari aðgerða vegna fjölg­unar smita. Þar hefur breska afbrigði veirunnar stungið sér niður af krafti.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent