BP þarf að borga 18,7 milljarða dala skaðabætur fyrir olíuslys

oliuslys_deepwater.jpg
Auglýsing

Strand­ríki Banda­ríkj­anna við Mexík­óflóa hafa kom­ist að sam­komu­lagi við olíu­fé­lagið BP um að breska olíu­fé­lagið borgi 18,7 millj­arða banda­ríkja­dala á næstu 18 árum í skaða­bætur fyrir Deepwa­ter Horizon slysið árið 2010. Þetta var til­kynnt í dag í New Orleans í Luoisi­ana.

Skaða­bæt­urnar jafn­gilda um það bil 2.479 millj­örðum íslenskra króna á núver­andi gengi en til sam­an­burð­ar­ var verg lands­fram­leiðsla Íslands árið 2014 rúm­lega 1.993 millj­arðar króna.

Olíu­meng­un­in á Mexík­óflóa, í kjöl­far þess að Deepwa­ter Horizon-ol­íu­bor­p­all­ur­inn sprakk í loft upp, er sú allra mesta í sögu olíu­vinnslu úr set­lögum undir sjáv­ar­máli. Talið er að umfang ­meng­un­ar­inn­ar hafi ver­ið um það bil 8 til 31 pró­sent meira en í Ixtoc I-slys­inu 1979, en það er jafnan talið næst stærsta olíuslys sög­unn­ar.

Auglýsing

Bor­p­all­ur­inn sem var í eigu BP sökk eftir að spreng­ing varð um borð með þeim afleið­ingum að ell­efu starfs­menn fór­ust og bor­holan spúði olíu upp úr hafs­botn­inum í 87 daga áður en henni var lokað um mitt sumar 2010. Stjórn­völd í Banda­ríkj­unum telja að ígildi 4,9 milljón olíu­tunna hafi farið í sjó­inn, eða því sem nemur inn­flutn­ingi Íslands af olíu allt árið 2011. Enn er talið að olía leki fram hjá „tapp­an­um“ sem settur var til að stöðva flæðið úr hafs­botn­in­um.

BP greiðir nærri 50 millj­arða dala



Á þeim fimm árum sem liðin eru síðan slysið varð hefur BP eytt um 30 millj­örðum banda­ríkja­dala í hreinsun á slys­stað og miska­bætur vegna tjóns sem hlaust af slys­inu. Fyr­ir­tækið hefur einnig við­ur­kennt sekt sína fyrir dóm­stólum og reist sokk­inn bor­p­all­inn af hafs­botn­in­um. BP hefur þó vísað á verk­taka­fyr­ir­tækin Halli­burton og Transocean sem ráku bor­p­all­inn og sagt þau bera jafn mikla ábyrgð á slys­inu.

Skaða­bæt­urnar sem BP mun borga á næstu 18 árum er nið­ur­staða máls­höfð­unar strand­ríkj­anna Ala­bama, Flór­ída, Lou­isi­ana, Miss­issippi og Texas auk alrík­is­stjórn­ar­innar á hendur BP. Síð­ast­liðið haust sagði New York Times frá því að upp­hæðin gæti orðið allt að 18 millj­arðar dala. BP hafði aðeins lagt til hliðar 3,5 millj­arða til að borga sig frá­ lög­sókn­inni.

„Þessi nið­ur­staða setur tón­inn,“ lét Robert Bent­ley, rík­is­stjóri í Ala­bama, hafa eftir sér þegar sam­komu­lagið var kynnt. „Upp­hæðin er til þess að koma til móts við ríkin vegna þess tjóns sem orðið hef­ur, bæði hvað varðar umhverfið og efna­hag­inn.“

FILE USA GULF OIL SPILL FINE Magnið af olíu sem fór í sjó­inn jafn­gildir því sem Íslend­ingar flytja inn af olíu á ári, eða um 4,9 milljón tunn­ur. (Mynd: EPA)

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None