Búast má við einhverjum tilslökunum í lok vikunnar

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir mun skila Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra tillögur að framhaldi sóttvarnaráðstafana í dag eða á morgun. Miðað við orð þeirra beggja má búast við að slakað verði eitthvað á.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Auglýsing

Ef marka má orð bæði sótt­varna­læknis og heil­brigð­is­ráð­herra í sam­tali við fjöl­miðla í gær og í dag má gera ráð fyrir því að slakað verði á sótt­varna­ráð­stöf­unum síðar í vik­unni, en núgild­andi reglu­gerð um sam­komu­tak­mark­anir rennur út á föstu­dag, 27. ágúst.

Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir sagði í Kast­ljósi í gær að þróun far­ald­urs­ins inn­an­lands væri jákvæð og að hann myndi horfa til þess er hann setti saman næsta minn­is­blað sitt til Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra, en fjöldi þeirra sem eru með virkt smit fer nú minnk­andi dag frá degi og staðan á Land­spít­al­anum er orðin betri en hún virt­ist vera fyrir skömmu síð­an. Sjö manns eru nú á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans.

Svan­dís tal­aði við fjöl­miðla eftir rík­is­stjórn­ar­fund í dag og sagði bæði við Rík­is­út­varpið og frétta­stofu Stöðvar 2 að hún teldi svig­rúm til staðar til þess að slaka á aðgerð­um.

Auglýsing

„Ég er sam­mála því,“ sagði Svan­dís við Stöð 2. Hún benti á að smit­bylgjan virt­ist á und­an­haldi og að tök væru að nást á stöðu mála.

Þrátt fyrir sagði hún að þol­mörk Land­spít­al­ans væru ekki langt und­an, en ráð­ist hefði verið í ýmsar aðgerðir til að styðja spít­al­ann í því að sinna hlut­verki sínu.

Hún sagði ýmis mál til skoð­un­ar, meðal ann­ars kröfur sem settar hafa verið fram af hálfu knatt­spyrnu­liða um að rýmka fjölda­tak­mark­anir þannig að fleiri áhorf­endur geti mætt á knatt­spyrnu­leiki.

Ráð­herra sagð­ist búast við því að minn­is­blað með til­lögum um áfram­hald sótt­varna­ráð­staf­ana ber­ist frá sótt­varna­lækni ýmist síðar í dag eða í fyrra­mál­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent