Eggert Gunnþór Jónsson leikmaður FH í knattspyrnu, sem sakaður er um að hafa brotið kynferðislega á konu í keppnisferð karlalandsliðslins í fótbolta í Kaupmannahöfn 2010, segist fullkomlega saklaus í tilkynningu sem lögmaðurinn hans sendi á fjölmiðla fyrr í dag.
Stundin greindi frá því fyrr í dag að Eggert hafi verið annar þeirra sem var kærður vegna málsins, ásamt landsliðsfyrirliðanum Aroni Einari Gunnarssyni. Vegna málsins ákvað KSÍ að velja Aron Einar ekki í landsliðshópinn, en samkvæmt frétt Stundarinnar hefur FH ekki brugðist við með sama hætti gagnvart Eggerti Gunnþóri.
Í yfirlýsingu sinni segist Eggert hafa reynt að skýla sér og fjölskyldu sinni fyrir kastljósi fjölmiðla vegna málsins, þar sem hann hafi ekki verið nafngreindur fram til þessa. Hann hafi hins vegar óskað eftir því að vera boðaður í skýrslutöku hjá lögreglunni til að skýra frá sinni hlið.
„Þar sem ég hef ekki enn fengið tækifæri til að skýra mál mitt á réttum vettvangi og sökum umfjöllunar fréttamiðla í dag tel ég mig hinsvegar ekki eiga annan kost en að stíga fram og lýsa því opinberlega yfir að ég er fullkomlega saklaus af því sem ég hef verið sakaður um,“ bætir Eggert við.
Yfirlýsing Eggerts Gunnþórs í heild sinni:
Undanfarnar vikur hafa fjölmiðlar fjallað um atvik sem á að hafa átt sér stað í Kaupmannahöfn árið 2010 þar sem tveir landsliðsmenn hafa verið bornir þungum sökum. Ég er annar umræddra landsliðsmanna.
Það er hrikalegt áfall að vera ásakaður um hræðilegt ofbeldisbrot vegna atviks sem var svo sannarlega ekki með þeim hætti sem lýst er í fjölmiðlum.
Ég hef reynt að skýla mér og fjölskyldu minni fyrir kastljósi fjölmiðla þar sem ég hafði fram að birtingu fréttar Stundarinnar í dag ekki verið nafngreindur. Föstudaginn 1. október síðastliðinn hafði ég hinsvegar þegar óskað eftir því að vera boðaður í skýrslutöku til að skýra frá minni hlið.
Þar sem ég hef ekki enn fengið tækifæri til að skýra mál mitt á réttum vettvangi og sökum umfjöllunar fréttamiðla í dag tel ég mig hinsvegar ekki eiga annan kost en að stíga fram og lýsa því opinberlega yfir að ég er fullkomlega saklaus af því sem ég hef verið sakaður um.
Ég vona að málið komist í réttan farveg hið snarasta svo ég geti hreinsað mig af þessum ásökunum.
Eggert Gunnþór Jónsson.