Stjórn Ferðafélags Íslands hafnar lýsingum fráfarandi forseta

Stjórn Ferðafélags Íslands lýsir furðu og vonbrigðum með lýsingar fráfarandi forseta á viðskilnaði sínum við félagið. Stjórnin viðurkennir að samskiptavandi hafi verið til staðar en að hann sé tilkominn vegna framkomu hennar við framkvæmdastjóra félagsins

Stjórn Ferðafélags Íslands lýsir yfir vonbrigðum og furðu með hvernig fráfarandi forseti lýsir viðskilnaði sínum við félagið.
Stjórn Ferðafélags Íslands lýsir yfir vonbrigðum og furðu með hvernig fráfarandi forseti lýsir viðskilnaði sínum við félagið.
Auglýsing

Allt stjórn­ar­fólk í stjórn Ferða­fé­lags Íslands lýsir yfir von­brigðum og furðu með hvernig frá­far­andi for­seti lýsir við­skiln­aði sínum við félagið og hafnar þeim lýs­ingum sem frá­far­andi for­seti hefur komið fram með.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Ferða­fé­lagi Íslands vegna afsagnar Önnu Dóru Sæþórs­dótt­ur, for­seta Ferða­fé­lags­ins, sem hún til­kynnti félag­inu í morg­un. Í færslu sem Anna Dóra birti á Face­book sagð­ist hún ekki getað starfað í félagi þar sem stjórn­­­ar­hættir og sið­­ferð­is­­leg gildi, sem ganga þvert á hennar eigin gildi, ráða ríkj­­um.

Afsögnin snýr að van­getu stjórnar Ferða­fé­lags Íslands að taka á málum sem snúa að áreitni og kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Eitt málið varðar fyrr­ver­andi stjórn­ar­mann í félag­inu, Helga Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi yfir­lög­fræð­ing hjá Lands­virkj­un.

Auglýsing

Í til­kynn­ingu frá stjórn Ferða­fé­lags Íslands segir að stjórnin sé „skipuð fjöl­breyttum hópi ein­stak­linga úr ólíkum átt­um, bæði konum og körl­u­m.“ Stjórn­ina skipa, eftir afsögn Önnu Dóru, þau Sig­rún Val­bergs­dóttir vara­for­seti, Pétur Magn­ús­son gjald­keri, Gísli Már Gísla­son, Ólöf Kristín Sívert­sen, Tómas Guð­bjarts­son, Sig­urður Ragn­ars­son og Gestur Pét­urs­son.

Stjórnin vísar „al­gjör­lega á bug þeim ásök­unum og lýs­ing­um“ sem Anna Dóra setur fram í yfir­lýs­ingu sinni. Stjórnin segir fag­leg ferli og við­mið vera til staðar hjá félag­inu um hvernig tekið skal á málum sem koma upp í sam­skiptum innan félags­ins, þar með talið mál er varða kyn­ferð­is­lega áreitni. „Tekið hefur verið á öllum málum af þessu tagi með fag­legum og skipu­lögðum hætti og þau leidd til lykta,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Stjórnin stað­festir hins vegar að „til staðar hafa verið vanda­mál í sam­skiptum innan stjórnar við frá­far­andi for­seta. Þessi sam­skipta­vandi er til­kom­inn vegna stjórn­ar­hátta hennar og fram­komu hennar við fram­kvæmda­stjóra félags­ins.“ Fram­kvæmda­stjóri Ferða­fé­lags Íslands er Páll Guð­munds­son, sem hefur gegnt starf­inu frá 2004.

Upp­fært klukkan 20:24: Upp­haf­lega sagði að Mar­grét Hall­gríms­dóttir ætti sæti í stjórn­inni en það er ekki rétt. Mar­grét sagði sig úr stjórn FÍ í vor þegar hún lét af störfum sem þjóð­minja­vörð­ur. Beðist er vel­virð­ingar á þessu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent