Stoðir, einn stærsti einkafjárfestir landsins, hagnaðist um 7,6 milljarða króna á árinu 2020. Eigið fé félagsins í lok síðasta árs var 31,8 milljarðar króna. Stoðir eru nánast skuldlaust félag. Alls nema skuldir þess 42 milljónum króna, eða 0,1 prósenti af bókfærðu virði eigna félagsins.
Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi Stoða fyrir árið 2020. Þrátt fyrir góða afkomu og mikinn hagnað lagði stjórn Stoða ekki til að beinn arður yrði greiddur út úr félaginu vegna frammistöðu síðasta árs. Hagnaðurinn getur þess í stað nýst í nýjar fjárfestingar.
Langstærsti hluti eigna Stoða er bundinn í skráðum hlutabréfum í þremur íslenskum félögum. Virði þeirra félaga var bókfært á 25,8 milljarða króna um síðustu áramót og virði eignaflokksins jókst alls um rúmlega 8,3 milljarða króna milli ára.
Alls hefur eigið fé Stoða aukist um 18,5 milljarða króna frá árslokum 2016.
Ekki upplýst um kaupverðið
Vorið 2017 keypti hópur fjárfesta ráðandi hlut í Stoðum af þrotabúi Glitnis, síðar Glitnir HoldCo, banka sem hafði haldið á hlutnum frá því að fjárfestingafélagið var gert upp í kjölfar bankahrunsins. Það hét áður FL Group og var á meðal stærstu eigenda Glitnis.
Þegar þessi sala átti sér stað áttu Stoðir einungis eina eign af viti sem átti eftir að vinna úr, hlut í hollenska drykkjarvöruframleiðandanum Refresco. Sá hlutur var seldur í mars 2018 eftir yfirtökutilboð og eftir sátu um 18 milljarðar króna í Stoðum. Þeir fjármunir hafa verið notaðir í fjárfestingar á undanförnum misserum og hafa ávaxtast með þeim hætti að eigið féð er nú næstu næstum 14 milljörðum krónum hærra.
Glitnir Holdco hefur aldrei viljað veita upplýsingar um söluna. Á meðal þess sem Kjarninn hefur spurt félagið að vegna hennar er á hvað hluturinn hafi verið seldur.
Jón orðinn forstjóri á ný
Þessi eignarhlutur í Stoðum er nú inni í félaginu S121 ehf. stærsta eiganda Stoða með 55,3 prósent eignarhlut. Stærsti eigandi S121 ehf. er félagið Helgarfell ehf. sem er í eigu Jóns Sigurðssonar, forstjóra Stoða, Bjargar Fenger eiginkonu hans og fjölskyldu hennar. Á meðal annarra eigenda Helgarfells er Ari Fenger, formaður Viðskiptaráðs.
Jón hefur verið stjórnarformaður Stoða undanfarin ár en var fyrr í þessum mánuði ráðinn forstjóri fjárfestingafélagsins. Sigurjón Pálsson tók við sem stjórnarformaður samhliða. Þar með er Jón kominn aftur í stól forstjóra sem hann settist fyrst í í desember 2007, þá ekki orðinn þrítugur.
Má þar nefna félög tengd Magnúsi Ármann, sem var hluthafi í FL Group og sat í stjórn félagsins, Örvari Kjærnested, sem var yfir starfsemi FL Group London fyrir hrun, og Bernhard Bogasyni, fyrrverandi framkvæmdastjóri lögfræðisviðs FL Group. M ehf., félag tengt Þorsteini M. Jónssyni, sem var á meðal lykilleikenda í FL Group á árum áður, á líka hlut í S121 ehf.
Þá á Einar Örn Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Skeljungs, stóran hlut.
Landsbankinn átti 12,1 hlut í Stoðum sem var seldur í desember í fyrra á 3,3 milljarða króna. Mótás, félag í eigu Bergþórs Jónssonar og Fritz Hendriks Berndsen, keypti stærstan hluta hans, eða fyrir rúman milljarð króna. Á meðal annarra fjárfesta sem keyptu af Landsbankanum er eignarhaldsfélagið P1211 ehf., sem er í eigu Lárusar Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, og Ágústu Margrétar Ólafsdóttur, eiginkonu hans. Þau keyptu um eitt prósent hlut.
Þá bættu hluti fyrri hluthafa við sig eignarhlutum.
Eiga stóran hlut í tveimur bönkum
Stoðir er einn umsvifamesti einkafjárfestirinn á íslenskum hlutabréfamarkaði í dag. Það er til að mynda stærsti einstaki hluthafi Símans með 15,41 prósent eignarhlut.
Í fjárfestakynningu vegna uppgjörs Símans fyrir árið 2020 kom fram að lagt yrði til við aðalfund að færa niður eigið fé Símans um átta milljarða króna. Til viðbótar átti að greiða arð upp á hálfan milljarð króna vegna frammistöðu síðasta árs. Hluthafar Símans munu því fá 8,5 milljarða króna greidda út úr félaginu í ár. Hlutur Stoða í þeirri greiðslu verður um 1,3 milljarðar króna.
Stoðir eru líka stærsti innlendi einkafjárfestirinn í Arion banka, þess sem nú endurfjármagnar skuldir Símans, en þar hefur verið rekin sú stefna að reyna að greiða sem mest eigið fé út úr bankanum undanfarin ár. Á næstu árum er stefnt að því að greiða um 50 milljarða króna til hluthafa bankans. Á þessu ári munu arðgreiðslur verða þrír milljarðar króna og endurkaup á eigin bréfum 15 milljarðar króna. Hlutdeild Stoða í þeirri útgreiðslu er um 900 milljónir króna.
Eftir að sameining Kviku, TM og Lykils gekk í gegn eru Stoðir líka stærsti eigandi þess banka með 9,03 prósent hlut.
Þessar þrjár eignir eru yfir 90 prósent af eignum Stoða.