Einn nýliði á lista yfir sex efstu í flokksvali Samfylkingarinnar

Guðný Maja Riba náði sjötta sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. Skúli Þór Helgason hlaut þriðja sætið og Sabine Leskopf fjórða, en engin barátta var um efstu tvö sætin.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri leiðir lista Samfylkingingarinnar í Reykjavík áfram í sveitarstjórnarkosningum í vor. Hann gaf einn kost á sér í fyrsta sætið. Sitjandi borgarfulltrúar verma sex af átta efstu sætunum.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri leiðir lista Samfylkingingarinnar í Reykjavík áfram í sveitarstjórnarkosningum í vor. Hann gaf einn kost á sér í fyrsta sætið. Sitjandi borgarfulltrúar verma sex af átta efstu sætunum.
Auglýsing

Sam­fylk­ing­ar­fólk hefur valið sér full­trúa á lista til borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga í vor, en flokksval fór fram með raf­rænni kosn­ingu um helg­ina.

Úrslitin urðu eft­ir­far­andi:

  1. sæti Dagur B. Egg­erts­son með 2.419 atkvæði í 1. sæt­i. 
  2. sæti Heiða Björg Hilm­is­dóttir með 1.926 atkvæði í 1.- 2. sæt­i. 
  3. sæti Skúli Helga­son með 1.104 atkvæði í 1. - 3. sæt­i. 
  4. sæti Sabine Leskopf með 910 atkvæði í 1. - 4. sæt­i. 
  5. sæti Hjálmar Sveins­son með 1.122 atkvæði í 1. - 5. sæt­i. 
  6. sæti Guðný Maja Riba með 1.212 atkvæði í 1.- 6. sæt­i. 

Í næstu sætum voru Sara Björg Sig­urð­ar­dóttir í 7. sæti og Ellen Jacqueline Calmon í 8. sæti.

Auglýsing

Á kjör­skrá voru 6.051 og atkvæði greiddu 3.036. Kjör­sókn var 50,2% 

Í flokksval­inu völdu flokks­fé­lagar og stuðn­ings­menn þá ein­stak­linga sem skulu skipa í efstu sætin á fram­boðs­lista flokks­ins fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í vor. Nið­ur­staða fyrir sex efstu sætin er bind­andi fyrir upp­still­ing­ar­nefnd, að teknu til­liti til reglna Sam­fylk­ing­ar­innar um að ekki halli á hlut kvenna, að því er segir í til­kynn­ingu á vef Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. 

Niðurstaða flokksvals er bindandi fyrir sex efstu sætin.

Fimmtán gáfu kost á sér í flokksval­inu en flokk­ur­inn er nú með sjö borg­ar­full­trúa. Allir sitj­andi borg­ar­full­trúar nema einn gáfu kost á sér í flokksval­inu. Engin bar­átta var um efstu tvö sæt­in, Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri gaf einn kost á sér í fyrsta sætið og Heiða Björg Hilm­is­dóttir vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og borg­ar­full­trúi var sömu­leiðis sú eina sem sótt­ist eftir öðru sæt­inu.

Borg­ar­full­trú­arnir Skúli Þór Helga­son og Hjálmar Sveins­son sótt­ust báðir eftir þriðja sæti list­ans auk þess sem Sabine Leskopf borg­ar­full­trúi gaf kost á sér í þriðja til fjórða sæti. Borg­ar­full­trú­inn Ellen Calmon gaf kost á sér í fimmta sæti list­ans.

Aron Leví Beck, Guðný Maja Riba, Ólöf Helga Jak­obs­dóttir og Sara Björg Sig­urð­ar­dóttir sótt­ust eftir fjórða til sjötta sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, Birkir Ingi­bjarts­son, Þor­kell Heið­ar­sosn og Þor­leifur Örn Gunn­ars­son gáfu kost á sér í fimmta sætið og þeir Pétur Mart­einn Urbanic Tóm­as­son og Stein Olav Romslo vildu fimmta til sjötta sæt­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent