„Eins og að synda í gegnum á úr skít“

Nýkjörinn formaður Eflingar sagði í sigurræðu sinni að ástandið í kosningabaráttunni væri búið að vera galið. „En okkur tókst þetta og við erum búin að vinna sigur í þessum kosningum.“

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Auglýsing

„Ég sagði við mig sjálfa og sagði við ykkur að þetta yrði eins og að synda í gegnum á úr skít. Ég sagði það við ykkur og þannig hefur þetta verið en við gáf­umst ekki upp. Það er alveg sama hvað kom, við gáf­umst ekki upp því við vissum að þetta er okkar bar­átta.“

Þetta sagði Sól­veig Anna Jóns­dóttir nýkjörin for­maður Efl­ingar við félaga sína á Barion Bryggu í sig­ur­ræðu sinni í gær. Bar­átt­u­list­inn, sem leiddur var af Sól­­veigu Önnu, vann sigur í stjórn­­­ar­­kjöri Efl­ingar sem lauk í gær en hann fékk 52 pró­­sent greiddra atkvæða.

Aðrir á B-lista eru þau Ísak Jóns­­son, Guð­­björg María Jós­eps­dótt­ir, Inn­­ocentia F. Frið­­­geir­s­­son, Kol­brún Val­v­es­dótt­ir, Mich­­ael Bragi Whal­­ley, Olga Leons­dóttir og Sæþór Benja­mín Randals­­son. Skoð­un­­ar­­menn reikn­inga eru Bar­bara Sawka, Magnús Freyr Magn­ús­­son og Val­­týr Björn Thors, sem er vara­­mað­­ur.

Auglýsing

„Al­gjör­lega galið ástand“

Sól­veig Anna hóf ræðu sína á því að óska öllum við­stöddum til ham­ingju.

„Þetta er nátt­úru­lega búið að vera algjör­lega galið ástand. Ég held ekki að nein kosn­inga­bar­átta sem ég hef orðið vitni af hafi verið jafn hatrömm af hálfu and­stæð­ing­anna.

En okkur tókst þetta og við erum búin að vinna sigur í þessum kosn­ingum og ég vil að við tökum smá tíma til að með­taka það að eftir allt sem á undan hefur gengið – allan þann tryll­ing sem á hefur gengið – þá tókst okkur að fá sam­þykki félags­fólks Efl­ingar fyrir því að við á Bar­áttu­list­anum eigum að fá að stýra efna­hags­legri rétt­læt­is­bar­áttu verka- og lág­launa­fólks á höf­uð­borg­ar­svæð­in­u,“ sagði hún.

Stolt og þakk­lát

Sól­veig Anna sagð­ist vera stolt og þakk­lát fyrir að hafa kynnst félögum sínum á Bar­áttu­list­an­um.

„Ég er stolt og þakk­lát fyrir að vera félags­kona í Efl­ingu, ykkar félagi, og ég er stolt og þakk­lát yfir því að hafa fengið að fara með ykkur í gegnum þessa bar­áttu. Ég sagði við mig sjálfa og sagði við ykkur að þetta yrði eins og að synda í gegnum á úr skít. Ég sagði það við ykkur og þannig hefur þetta verið en við gáf­umst ekki upp. Það er alveg sama hvað kom, við gáf­umst ekki upp því við vissum að þetta er okkar bar­átta. Við vissum að við höfum unnið stóra sigra og við vissum að við erum rétt að byrja.

Félags­fólk Efl­ingar hefur ákveðið að standa með okkur þannig að kæra fólk, ég vildi að ég hefði eitt­hvað meira að segja á þessum tíma­punkti en ég get ekki annað en aftur sagt að hjarta mitt er fullt af stolti og þakk­læti og ég hlakka til að taka næsta og næsta og næsta slag með ykkur og ég veit að þetta er aðeins byrj­unin á þeim mik­il­vægu og stóru sigrum sem framundan eru. Takk fyr­ir, kæru félag­ar,“ sagði hún að lok­um.

Draga megi lær­dóm af átökum síð­ustu vikna

Eins og kunn­ugt er sögðu Sól­veig Anna og fram­kvæmda­stjór­inn, Viðar Þor­steins­son, starfi sínu lausu fyrr í haust eftir átök á skrif­stofu stétt­ar­fé­lags­ins.

Ólöf Helga Adolfs­dóttir Mynd: Þórunn Hafstað

Ólöf Helga Adolfs­dótt­ir, sem leiddi A-list­ann og fékk 37 pró­sent greiddra atkvæða, sagð­ist í sam­tali við Vísi í gær vera von­svikin yfir úrslitum kvölds­ins en að hún virti að sjálf­sögðu vilja félags­manna. Hún taldi að draga mætti lær­dóm af átökum síð­ustu vikna innan Efl­ing­ar. Þá sagði hún mik­il­vægt að félags­menn veittu stjórn Efl­ingar meira aðhald nú en áður.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent