Hertar samkomutakmarkanir sem taka gildi á miðnætti annað kvöld taka ekki til leikskóla. Sóttvarnalæknir lagði ekki til lokun leikskóla í minnisblaði sínu til heilbrigðisráðherra en ákvörðun um upphaf skólahalds í grunn-, framhalds- og háskólum á nýju ári verður í höndum skólastjórnenda, en sóttvarnalæknir lagði til að skólar á þessu námsstigi yrðu lokaðir 10. janúar.
Í ályktun sem stjórnir Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla sendu frá sér eftir að hertar samkomutakmarkanir voru tilkynntar benda þau á að félögin komu áhyggjum sínum skýrt til skila með góðum fyrirvara en segja að málefnaleg rök hafi verið virt að vettugi. „Engin haldbær sóttvarnarrök eru fyrir því að loka ekki leikskólum. Öll börn á leikskólastiginu eru óbólusett og ef horft er til hlutfalls fjölda barna í einangrun er sáralítill munur á milli leik- og grunnskólastigsins,“ segir í ályktun félaganna.
Höfum vítin til að varast
20 manna samkomubann var síðast í gildi í apríl. Þá lokuðu grunn- og framhaldsskólar dagana fyrir dymbilviku en leikskólum var haldið opnum alla þá daga fram að lögbundnum frídögum. Félögin minna á þessa ákvörðun lagðist mjög illa í kennara og stjórnendur sem upplifðu mikla vanvirðingu gagnvart skólastiginu. „Sú ákvörðun leiddi til að í kjölfarið kom upp eitt stærsta hópsmit í íslensku samfélagi í leikskólanum Jörfa. Við höfum því vítin til að varast,“ segir í ályktuninni.
Félögin benda á að samgangur stórfjölskyldna er eðlilegur fylgifiskur jólahaldsins og getur það leitt til þess að smitin muni dreifa sér í leikskólum landsins milli jóla og nýárs. Félögin hvetja eindregið til þess að foreldrar haldi börnum sínum heima milli jóla og nýárs. Eins hvetja félögin öll sveitarfélög til að loka sínum leikskólum á milli hátíða.
„Það er ástæða til að hafa verulegar áhyggjur af afleiðingum þessarar ákvörðunar. Bæði til skamms tíma og lengri. Sú sóttvarnarlega áhætta sem verið er að taka er óumdeild,“ segir í ákyktuninni.