Erum við að fara að kveðja einangrun og sóttkví á föstudaginn?

Í síðasta minnisblaði sóttvarnalæknis var afnám reglna um einangrun og sóttkví á meðal þess sem lagt var til að ráðist yrði í 24. febrúar. Nú stendur til að flýta afléttingum, en óljóst er hvað felst í því að fella niður reglur um einangrun og sóttkví.

Yfir tíu þúsund manns eru nú í einangrun hérlendis og ríflega átta þúsund í sóttkví.
Yfir tíu þúsund manns eru nú í einangrun hérlendis og ríflega átta þúsund í sóttkví.
Auglýsing

Und­an­farna daga hefur verið sagt frá því í fréttum að Willum Þór Þórs­son heil­brigð­is­ráð­herra hafi vonir um að geta kynnt aflétt­ingar sótt­varna­ráð­staf­ana fyrr en áætlað hefur ver­ið. Í umfjöll­unum fjöl­miðla var vísað til síð­asta minn­is­blaðs Þór­ólfs Guðna­son­ar, þar sem aflétt­ingar voru teikn­aðar upp í skref­um.

Haft var eftir ráð­herra á RÚV í gær að næstu aflétt­ingar sem áætl­aðar höfðu verið 24. febr­úar gætu færst fram um jafn­vel tvær vikur og tíð­inda væri að vænta á föstu­dag, eftir rík­is­stjórn­ar­fund.

Reglur um ein­angrun og sótt­kví á útleið?

Það sem kannski einna helst hefur vakið athygli í þessum fréttum er það að á meðal aðgerða sem sótt­varna­læknir dróg upp í sínu nýjasta minn­is­blaði frá 26. jan­úar var það að reglur um bæði ein­angrun og sótt­kví myndu falla í þeim aðgerðum sem áætl­aðar hafa verið 24. febr­ú­ar.

Skjáskot úr minnisblaði sóttvarnalæknis frá 26. janúar.

Í dag eru 10.100 manns í ein­angrun og 8.763 í sótt­kví sam­kvæmt opin­berum töl­um, eða all­nokkur pró­sent þjóð­ar­inn­ar.

Auglýsing

Það er svipað og verið hefur und­an­farnar vik­ur, á meðan ómíkrón-af­brigði kór­ónu­veirunnar hefur þotið á milli lands­manna, án þess þó bless­un­ar­lega að valda alvar­legum veik­indum hjá mörgum og þar með engu slig­andi álagi á heil­brigð­is­kerf­ið.

Upp­lýs­ingar hafi ekki þýð­ingu nema fyrir end­an­lega ákvörðun

Kjarn­inn óskaði eftir frek­ari skýr­ingum á þessu efn­is­at­riði í minn­is­blað­inu frá sótt­varna­lækni og spurði blaða­maður hvort ein­hver hængur væri á þessu orða­lagi, sem ekki hefði verið útskýrður til fulls í hans síð­asta minn­is­blaði, eða hvort það yrði ein­fald­lega svo að þeir sem greindir væru með COVID-19 gætu valsað um bæinn og farið á manna­mót að vild, eftir að reglur yrðu felldar nið­ur.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segist ekki telja upplýsingar um hvernig eigi að afnema reglur um einangrun og sóttkví hafi þýðingu, á þessum tímapunkti. Mynd: Almannavarnir

Þórólfur svar­aði skrif­legri fyr­ir­spurn Kjarn­ans um þetta efni ein­fald­lega með þeim orðum að „end­an­legt minn­is­blað“ væri ekki farið til heil­brigð­is­ráð­herra, en eins og sagt var frá í fréttum í gær er sótt­varna­læknir með minn­is­blað í smíðum um næstu aflétt­ing­ar.

Blaða­maður ítrek­aði þá að verið væri að spyrja um efn­is­at­riði í hans fyrra minn­is­blaði og kom því á fram­færi við sótt­varna­lækni að það hefði „þýð­ingu að fá frek­ari útskýr­ingu á því hvað afnám reglna um ein­angrun og sótt­kví felur í sér.“

Sótt­varna­læknir er þó ekki á þeirri skoð­un. „Upp­lýs­ing­arnar hafa ekki þýð­ingu nema fyrir end­an­lega ákvörð­un,“ segir í skrif­legu svari hans við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Skýrist á föstu­dag

Það er því enn nokkuð óljóst hvað nákvæm­lega felst í því að fella niður allar núver­andi reglur um ein­angrun og sótt­kví og hvort ein­hver ný til­mæli fyrir þá sem eru með veiruna muni leysa regl­urnar af hólmi.

Einnig er ekki ljóst hvort nið­ur­fell­ing regln­anna verði yfir höfuð á meðal þeirra aflétt­inga sem sótt­varna­læknir kemur til með að leggja til í næsta minn­is­blaði sínu til ráð­herra um aflétt­ing­ar.

Um það fær almenn­ingur vænt­an­lega að heyra meira um á föstu­dag, að rík­is­stjórn­ar­fundi lokn­um, eins og venjan er.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent