Fjórar tilkynningar um kynferðislega áreitni borist til RÚV

Brugðist hefur verið við fjórum tilkynningum um kynferðislega áreitni í samræmi við viðbragðsáætlun RÚV á síðustu fjórum árum.

RÚV
Auglýsing

Sam­kvæmt skrán­ingum RÚV hafa fjórar til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­lega áreitni borist á síð­ast­liðnum fjórum árum. Þetta kemur fram í svari útvarps­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

„Brugð­ist hefur verið við þeim í sam­ræmi við við­bragðs­á­ætlun og leyst úr málum á grunni henn­ar. Við­bragðs­á­ætl­unin er end­ur­skoðuð reglu­lega, síð­ast í ágúst síð­ast­liðn­um,“ segir í svar­inu. Kyn­ferð­is­leg áreitni er skil­greind í við­bragðs­á­ætl­un­inni sem hvers kyns hegðun sem er í óþökk þess sem fyrir henni verður og hefur þann til­gang eða þau áhrif að mis­bjóða virð­ingu við­kom­andi einkum þegar hegð­unin leiðir til ógn­andi, fjand­sam­legra, nið­ur­lægj­andi, auð­mýkj­andi eða móðg­andi aðstæðna. Hegð­unin getur verið orð­bund­in, tákn­ræn og/eða lík­am­leg.

Fram kemur hjá RÚV að spurt sé um þessi mál í árlegri vinnu­staða­grein­ingu og fræðsla um þau, við­bragðs­á­ætlun og verk­ferla sé hluti af fræðslu til starfs­fólks RÚV. Við­bragðs­á­ætlun RÚV gegn ein­elti, ofbeldi, kyn­ferð­is­legri og kyn­bund­inni áreitni er aðgengi­leg á innri og ytri vef RÚV.

Auglýsing

Í við­bragðs­á­ætl­un­inni segir að hver sem telur sig hafa orðið fyrir ein­elti, ofbeldi, kyn­ferð­is­legri eða kyn­bund­inni áreitni á vinnu­stað, eða hafa rök­studdan grun eða vit­neskju um slíka hegð­un, skuli upp­lýsa næsta yfir­mann, annan stjórn­anda, mannauðs­stjóra eða annan sem við­kom­andi treyst­ir. Fyllsta trún­aðar skuli gætt við með­ferð slíkra mála og vinnsla þeirra vera í sam­ráði við þann sem til­kynn­ir. Gagn­legt sé að skrá þau atvik sem til­kynn­ingin bygg­ist á og einnig hverjir séu mögu­lega til vitn­is. Ef við­kom­andi vill fá ráð­gjöf utan vinnu­stað­ar­ins sé hægt að leita beint til Áfalla- og sál­fræði­m­ið­stöðv­ar­innar (ÁSM) og fá tíma hjá sál­fræð­ingi.

Þegar til­kynnt er um ein­elti, ofbeldi, kyn­ferð­is­lega eða kyn­bundna áreitni eru tvær leiðir fær­ar. Sá sem fer með úrlausn máls­ins ákveður við­brögðin í sam­ráði við þann er til­kynn­ir. Far­vegur máls getur verið form­legur eða óform­legur og eru þessir kostir kynntir starfs­manni er til­kynn­ir.

Hægt er að lesa við­bragðs­á­ætl­un­ina hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent