„Fullvíst“ að ekki hafi tekist að uppræta veiruna úr samfélaginu

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að þrátt fyrir að tekist hafi að koma í veg fyrir stærri hópsýkingar og útbreiðslu á kórónuveirunni megi telja fullvíst að ekki hafi tekist að uppræta veiruna úr samfélaginu.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Auglýsing

Með þeim aðgerðum sem verið hafa í gildi inn­an­lands og á landa­mær­unum síð­ustu vikur hefur tek­ist að koma í veg fyrir stórar hóp­sýk­ingar og útbreiðslu kór­ónu­veirunn­ar. Því leggur sótt­varna­læknir til í nýju minn­is­blaði sínu til heil­brigð­is­ráð­herra að ákveðnar aflétt­ingar verði gerðar á tak­mörk­unum inn­an­lands og hefur ráð­herr­ann farið að til­mælum hans í nýrri reglu­gerð sem tekur gildi á fimmtu­dag.

Þegar síð­asta reglu­gerð var sett þann 25. mars um tak­mark­anir á sam­komum inn­an­lands höfðu vik­urnar á undan komið upp nokkrar hóp­sýk­ingar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu af völdum breska afbrigðis kór­ónu­veirunn­ar. Afbrigðið hefur valdið miklum usla í nágranna­löndum okkar síð­ustu vikur og mán­uði enda hefur fleira ungt fólk verið að veikj­ast en af öðrum afbrigðum veirunn­ar.

Auglýsing

Á sama tíma voru aðgerðir á landa­mær­unum einnig hertar sem fólst í sýna­töku hjá ferða­mönnum sem fram­vísa vott­orðum um fyrri sýk­ingu af völdum COVID-19 og bólu­setn­ingu gegn COVID-19, sýna­töku, hjá börnum sem hingað ferð­ast og aukið eft­ir­lit með þeim sem dvelj­ast í sótt­kví eða ein­angr­un.

Frá því þessar reglu­gerðir tóku gildi hafa dag­leg smit verið frá 2-11 alls og á allt upp í sex þar af hverju sinni verið utan sótt­kvíar við grein­ingu. „Þannig má full­yrða að komið hafi verið í veg fyrir stærri hóp­sýk­ingar eða útbreiðslu,“ skrifar Þórólfur í minn­is­blaði sínu. Hins vegar megi „full­víst telja að ekki hafi tek­ist að upp­ræta veiruna úr sam­fé­lag­inu og því fyllsta ástæða til að fara áfram með fyllstu gát sér­stak­lega þegar haft er í huga að COVID-19 er ennþá í mik­illi útbreiðslu í okkar nálægu lönd­um. Þá er ekki séð fyrir end­ann á afleið­ingum nýrra afbrigða veirunn­ar. Þess vegna er áfram mik­il­vægt að við­hafa ýtr­ustu var­kárni á landa­mærum og það í raun lyk­ill að því að hægt sé að slaka á inn­an­lands“.

Þórólfur skrifar einnig að bólu­setn­ingar elstu hópa hér á landi gangi vel og nú sé búið að bólu­setja langt yfir 90 pró­sent af 70 ára og eldri. „Ég tel þó rétt að fara hægt í allar aflétt­ingar tak­mark­ana inn­an­lands á meðan verið er að ná góðum tökum á smitum á landa­mærum og auk­inni þátt­töku í bólu­setn­ing­um.“

Helstu breyt­ingar á almennum sam­komu­tak­mörk­unum sem taka gildi á fimmtu­dag:

Í meg­in­at­riðum verður um sam­bæri­legar tak­mark­anir að ræða á sam­komum og giltu frá 5. febr­úar síð­ast­liðn­um. Minnt er á mik­il­vægi þess að fólk gæti vel að sótt­vörnum og fylgi regl­um.

  • Almennar fjölda­tak­mark­anir verða 20 manns.
  • Sund- og bað­stöðum og heilsu- og lík­ams­rækt­ar­stöðvum heim­ilt að opna fyrir 50% af leyfi­legum hámarks­fjölda gesta, auk ann­arra skil­yrða.
  • Íþrótta­æf­ingar og -keppnir barna og full­orð­inna með og án snert­inga í öllum íþróttum heim­il­ar, án áhorf­enda. Hámarks­fjöldi full­orð­inna verður 50 manns en fjöldi barna fer eftir sömu tak­mörk­unum og í skóla­starfi.
  • Skíða­svæðum heim­ilt að taka á móti 50% af hámarks­fjölda mót­töku­getu hvers svæð­is.
  • Sviðs­list­ir, þar með talið kór­a­starf, heim­ilar með allt að 50 manns á sviði og 100 sitj­andi gestum í hverju hólfi, auk ann­arra skil­yrða.
  • Hámarks­fjöldi við athafnir trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga áfram 30 manns en fjölgar í 100 manns við útfar­ir.
  • Öllum versl­unum heim­ilt að taka á móti 5 við­skipta­vinum á hverja 10 m², þó að hámarki 100 manns, auk 20 starfs­manna í sama rými og við­skipta­vin­ir.
  • Skemmti­stöð­um, krám, spila­sölum og spila­kössum heim­ilt að hafa opið með sömu skil­yrðum og veit­inga­stöðum þar sem heim­il­aðar eru áfeng­is­veit­ing­ar.
  • Verk­legt öku­nám og flug­nám með kenn­ara heim­ilt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent