Anna Dóra Sæþórsdóttir, fyrsta konan í 94 ára sögu Ferðafélags Íslands sem gegnir embætti forseta félagsins, hefur sagt af sér embætti. Hún var kjörin forseti í júní í fyrra. Afsögn hennar byggir á því að hún getur ekki starfað í félagi þar sem stjórnarhættir og siðferðisleg gildi, sem ganga þvert á hennar eigin gildi, ráða ríkjum. Anna Dóra greindi frá afsögn sinni í færslu á Facebook í morgun þar sem hún birtir afrit af tilkynningu sem hún hefur sent Ferðafélagi Íslands.
Í tilkynningunni segir hún að fljótlega eftir að hún tók við sem forseti félagsins fóru henni að berast upplýsingar um ýmis mál sem ekki hafði verið brugðist við af hendi félagsins. „Heldur virtist upplýsingum ítrekað hafa verið stungið undir stól, hvort sem þær vörðuðu ásakanir um áreitni og gróft kynferðislegt ofbeldi eða athugasemdir um rekstur félagsins. Þegar ég fór að beita mér fyrir því að tekið yrði á þessum málum og öðrum fór að bera á brestum í samstarfi mínu við stjórn og framkvæmdastjóra,“ segir Anna Dóra í færslu sinni.
Alvarlegustu málin snertu einstaklinga sem höfðu gerst brotlegir á siðareglum félagsins eða verið ásakaðir um áreitni eða gróft kynferðislegt ofbeldi. Anna Dóra segir að æðstu stjórnendur félagsins höfðu haft upplýsingar um þessi mál í lengri tíma, án þess að taka á þeim.
„Þvert á móti fengu þeir sem þessum sökum voru bornir að starfa áfram sem fararstjórar á vegum félagsins,“ segir Anna Dóra.
Eitt málanna snýr að fyrrverandi stjórnarmanni og yfirlögfræðingi hjá Landsvirkjun
Eitt málanna varðaði stjórnarmann í félaginu, Helga Jóhannesson, fyrrverandi yfirlögfræðing hjá Landsvirkjun. Helgi hætti störfum hjá Landsvirkjun í byrjun nóvember í kjölfar þess að hann fékk formlega áminningu í starfi fyrir hegðun gagnvart samstarfskonu. Helgi sagði sig úr stjórn Ferðafélags Íslands á sama tíma.
„Ég beitti mér fyrir því að tekið yrði á þessum málum af festu og setti af stað athugun á þeim, sem og endurskoðun á stefnu og ferlum félagsins þegar kemur að slíkum málum. Í kjölfarið voru þessi mál til lykta leidd, og það síðastnefnda með því að viðkomandi stjórnarmaður sagði sig úr stjórn,“ segir Anna Dóra í færslu sinni.
Ágreiningur vegna meðhöndlunar þessara mála komu upp í stjórninni, Önnu Dóru til mikillar undrunar, og segir hún að innan stjórnarinnar hafi verið einstaklingar sem ekki vildu taka á þeim. Samstarfsörðugleikar hafa verið í stjórninni síðan.
Helgi átti að koma aftur inn í stjórn þar sem hann væri „vinur okkar“
„Ég taldi hins vegar að það væri ætlun stjórnar að halda ótrauð áfram eftir afgreiðslu þeirra. Mér kom því á óvart þegar ákveðnir stjórnarmenn vildu fljótlega taka aftur upp málið sem varðaði stjórnarmanninn fyrrverandi, fáum mánuðum eftir að það var til lykta leitt með úrsögn hans úr stjórn félagsins. Einn af þessum stjórnarmönnum, sem er góðvinur þessa fyrrverandi stjórnarmanns, hefur beitt sér af hörku fyrir því að stjórnarmaðurinn fyrrverandi fái aftur að starfa fyrir hönd félagsins, þrátt fyrir að engin málefnaleg eða viðskiptaleg rök séu fyrir því. Sá sem sagði af sér hefur enga sérhæfða þekkingu til starfa innan félagsins, sem fjöldi annarra getur ekki innt jafn vel af hendi. Ávinningur af slíkri ráðstöfun væri því enginn fyrir Ferðafélagið en myndi hins vegar valda félaginu orðsporsáhættu og mögulega aftra fólki frá þátttöku í ferðum félagsins, auk hættunnar á því að fyrri hegðun myndi endurtaka sig og aðrar konur yrðu fyrir áreitni,“ segir Anna Dóra í færslu sinni.
Helstu rökin sem notuð voru til að réttlæta endurkomu Helga í stjórnina voru að hann væri „vinur okkar“ og að „við skulduðum honum“, að því er segir í færslu Önnur Dóru. „Það er að mínu mati óeðlilegt að stjórnarfólk taki þátt í umræðu og ákvörðunum um vini sína og beiti aðstöðu sinni til að veita þeim sérstaka fyrirgreiðslu.“
Nýtt mál snýr að öðrum stjórnarmanni
Önnu Dóru bárust nýlega upplýsingar um mál þar sem snertir annan stjórnarmann í félaginu sem varðar áreitni og ósæmilega hegðun í skipulagðri ferð á vegum félagsins. Málið var ekki meðhöndlað í samræmi við stefnu félagsins.
„Þegar ég fékk veður af málinu og óskaði eftir upplýsingum um það, voru viðbrögðin þau að hafa uppi óbeinar hótanir gagnvart fararstjóra ferðarinnar, auk þess sem haft var samband við vinkonu konunnar sem fyrir áreitinu varð. Þeim var tilkynnt að það myndi hafa afleiðingar ef þetta mál yrði rætt frekar,“ segir Anna Dóra í færslu sinni.
Önnur mál hafa einnig valdið ágreiningi og samstarfsörðugleikum innan stjórnar, meðal annars sem snúa að almennum rekstri félagsins og stjórnarháttum þess. Anna Dóra segir að ítrekað hafi verið kvartað undan spurningum hennar um rekstur félagsins og henni sagt þess í stað að einbeita sér að þeim þáttum sem hún hafi sérþekkingu á, „sem sé ferðamálum, náttúruvernd og umhverfismálum.“ Þetta hafði þau áhrif að hún fór að veigra sér við því að spyrja spurninga til að halda friðinn. „Í því samhengi er vert að nefna að ein af meginskyldum stjórnar er að hafa eftirlitshlutverk með stjórnendum og starfsemi félagsins og slíkt er ómögulegt ef stjórn stuðlar að menningu og andrúmslofti þar sem spurningar eru illar séðar,“ segir Anna Dóra í færslu sinni.
Hún telur ljóst að innan stjórnar og meðal stjórnenda sé fólk sem ber ekki hagsmuni félagsins og félagsmanna fyrir brjósti. „Áherslan hjá þessu fólki virðist vera að viðhalda ákveðnu valdajafnvægi þar sem embættum og verkefnum er úthlutað til stjórnarfólks og vina og ekki er tekið á málum sem snerta þá sem tengjast þessum einstaklingum. Þessi hópur bregst ókvæða við þeim sem reyna að breyta því hvernig félagið vinnur ef slíkt kynni að raska valdajafnvæginu.“
Hún segir valdajafnvægið endurspeglast hvað best í samsetningu stjórnar. „Í stjórn félagsins og starfsmannahópi situr fólk sem tengist sterkum böndum, ýmist í gegnum það að hafa setið mjög lengi í stjórninni, sumir vel á annan áratug, eða með fjölskyldu- og vinaböndum. Tilraunum til að breyta þessu í aðdraganda síðasta aðalfundar var illa tekið. Formaður kjörnefndar, vinur þess stjórnarmanns sem sagði sig úr stjórninni vegna metoo-mála, virti að vettugi óskir mínar um að inn í stjórnina kæmi ung kona og lagði þess í stað til að vinur framkvæmdastjóra félagsins yrði stjórnarmaður. Gekk það eftir.“
Anna Dóra segir að ákveðið stjórnarfólk hafi í kjölfarið sýnt henni óvild og dónaskap og hefur reynt að útiloka hana frá starfi félagsins. Þetta komi hvað skýrast fram í bréfi sem hún fékk frá meirihluta stjórnar þann 1. júní síðastliðinn þar sem henni var bannað að vera í samskiptum við framkvæmdastjóra, starfsfólk skrifstofu félagsins og annað stjórnarfólk næstu mánuði. „Ég átti engu að síður að sitja áfram sem forseti með þeirri ábyrgð sem í því felst.“ Segir hún bréfið vera birtingarmynd þeirra stjórnarhátta sem tíðkast innan félagsins og framkomu meirihluta stjórnar í minn garð.
Anna Dóra segist ekki vilja starfa í félagi þar sem stjórnarhættir og siðferðisleg gildi sem ganga þvert á hennar eigin gildi ráða ríkjum. „Ég hef enn fremur ekki áhuga á að starfa með hópi þar sem útilokun og dónaskapur eru talin ásættanleg hegðun. Það er von mín að starfshættir félagsins breytist því að samfélagið hefur breyst og mikilvægt er að stærsta útivistarfélag landsins taki mið af þeim siðferðisgildum sem ríkja í þjóðfélaginu. Þar sem ekki virðist vera vilji innan stjórnar félagsins að breyta þessu segi ég hér með af mér sem forseti Ferðafélags Íslands.“
Anna Dóra segist vona að félagar hennar í Ferðafélagi Íslands muni á komandi misserum beita sér fyrir breyttum starfsháttum og siðbót innan félagsins. „Þangað til að svo verður hef ég ekki áhuga á því að starfa frekar innan félagsins og segi mig hér með einnig úr félaginu.“
Kæru vinir, rétt í þessu sendi ég tilkynninguna hér að neðan til Ferðafélags Íslands þar sem ég tilkynni um afsögn mína...
Posted by Anna Dóra Sæþórsdóttir on Tuesday, September 27, 2022