Hagnaður Samherja nam 17,8 milljörðum

Hagnaður Samherja hf. og hlutdeildarfélaga jókst um 10 milljarða á milli ára og nam 17,8 milljörðum á síðasta ári. Þar af námu söluhagnaður af sölu Síldarvinnslunnar hf. auk hlutdeildar í afkomu hennar 9,7 milljörðum króna.

Í ræðu á aðalfundi félagsins gerði Þorsteinn Már Vilhelmsson forstjóri rannsókn á starfsemi Samherja í Namibíu að umræðuefni sínu.
Í ræðu á aðalfundi félagsins gerði Þorsteinn Már Vilhelmsson forstjóri rannsókn á starfsemi Samherja í Namibíu að umræðuefni sínu.
Auglýsing

Hagn­aður Sam­herja hf. á árinu 2021 nam alls 17,8 millj­örðum króna í sam­an­burði við 7,8 millj­ónir á árinu 2020. Þetta kemur fram í árs­upp­gjöri Sam­herja sem kynnt var á aðal­fundi á Dal­vík 19. júlí síð­ast­lið­inn og greint er frá í til­kynn­ingu.

Þar segir að hagn­aður af starf­semi Sam­herja eftir skatta hafi numið 5,5 millj­örðum króna á árinu 2021 til sam­an­burðar við 4,5 millj­arða árið áður. Þá hafi sölu­hagn­aður af hluta­bréfum félags­ins í Síld­ar­vinnsl­unni hf., auk hlut­deildar í afkomu síð­asta árs, hafi numið 9,7 millj­örðum króna, og sölu­hagn­aður og hlut­deild Sam­herja í afkomu ann­arra hlut­deild­ar­fé­laga en Síld­ar­vinnsl­unni numið 2,6 millj­örðum króna.

Eignir Sam­herja í árs­lok 2021 námu 128 millj­örðum króna og eigið fé 94,3 millj­örð­um, en í til­kynn­ing­unni segir að efna­hagur félags­ins sé traust­ur, sem sé mik­il­vægt fyrir upp­bygg­ingu og fyr­ir­hug­aðar fjár­fest­ingar félags­ins í fisk­eldi. Þá var ákveðið á aðal­fundi félags­ins að greiða ekki arð og beina fjár­fest­ing­ar­styrk félags­ins inn í ný verk­efni.

Auglýsing
Í ræðu á aðal­fundi félags­ins gerði Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri rann­sókn á starf­semi Sam­herja í Namibíu að umræðu­efni sínu og sagði mik­il­vægt að halda því til haga að engir starfs­menn á þeirra vegum hafi verið ákærðir né að óskað hafi verið eftir fram­sali á þeim. Raunar sé hvorki félagið né starfs­menn þess „að­ilar að refsi­mál­inu sem rekið er gegn aðilum í Namib­íu“. Þeir hafi hins vegar setið í fang­elsi í tvö og hálft ár án dóms.

Sann­færður um að orð­spor Sam­herja verði hreinsað

„Rann­sókn hér á landi hefur einnig staðið yfir í tvö og hálft ár án þess að nokkuð hafi komið fram sem gefur til­efni til að stimpla ein­staka starfs­menn Sam­herja hf. sak­born­inga. Félagið hefur brugð­ist við þessum málum með ýmsum hætti og mun halda áfram að verja sak­leysi sinna starfs­manna sem ég er sann­færður um að verða hreins­aðir að öllum ásök­unum þegar upp er stað­ið. Í þessu sam­bandi er ánægju­legt að geta und­ir­strikað að sam­starfs­að­ilar okkar um allan heim hafa haldið tryggð við okk­ur.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent