Hanna Katrín Friðriksson þingflokksformaður Viðreisnar fjallaði um Íslandsbankasöluna undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag.
Salan hefur mikið verið í umræðunni undanfarna daga og vikur en í morgun mættu stjórnarformaður og formaður Bankasýslu ríkisins fyrir fjárlaganefnd. Málið virðist jafnframt hafa áhrif á stuðning við ríkisstjórnina en samkvæmt nýrri könnun mælist samanlagt fylgi ríkisstjórnarinnar undir 40 prósent og hefur Sjálfstæðisflokkurinn aldrei mælst minni í stórri könnun.
Hanna Katrín sagði í ræðu sinni að stjórnarmeirihlutinn hefði verið samstiga í möntrunni um að horfa þyrfti á það sem þau kölluðu „stóru myndina í Íslandsbankasölunni“ – að ríkið hefði jú á innan við ári fengið 108 milljarða í sinn hlut við söluna.
„Þjóðin er hins vegar greinilega sammála því sem Viðreisn hefur alltaf sagt í þessu samhengi; það þarf að horfa á enn stærri mynd, mynd sem tekur líka með í reikninginn siðferðilega ábyrgð, siðferðilega ábyrgð stjórnvalda á því að vel takist til.
Stjórnarmeirihlutinn segist sáttur við fjárhagslegu markmiðin sem náðust, segir minna um önnur markmið bankasölu hennar, þau sem varða almannahagsmuni, gegnsæi, jafnræði, traust. En kannski eiga þessi markmið ekkert heima í hinni stóru mynd ríkisstjórnarinnar,“ sagði Hanna Katrín.
Benti hún á að söluandvirði upp á 108 milljarða króna væru fjármunir sem nýta mætti í niðurgreiðslu á halla ríkissjóðs sem ríkisstjórnin hefði ekkert gert til að vinna á frá upphafi stjórnarsamstarfsins, svo ekki væri talað um innviðafjárfestingu sem hefði verið vanrækt í tíð þessarar ríkisstjórnar.
Salan þurfi að vera í þágu almennings
„Því miður hefur ríkisstjórnin klúðrað þessu verkefni undir verkstjórn Sjálfstæðisflokksins. Ríkisstjórnin hunsaði siðferðilega hluta Bankasýslunnar með þeim fyrirsjáanlegu og eðlilegu afleiðingum að traust þjóðarinnar er rofið.
Traust þjóðarinnar er ekkert. Í kjölfarið er sala á þeim hluta banka sem eftir stendur í eigu ríkisins fyrir bí og þar með sú 100 milljarða fjárfesting í innviðum og niðurgreiðslu skulda sem var fyrirhuguð til viðbótar. Og þetta eru sannarlega dýrkeypt mistök fyrir íslenskt samfélag. Ríkisstjórnin á eftir enn að svara því hvort afleiðingar mistakanna verði minni uppbygging innviða, skattahækkanir eða eitthvað annað,“ sagði hún.
Hanna Katrín telur að lærdómurinn sé sá að Sjálfstæðisflokknum sé ekki treystandi til að selja ríkiseignir. „Þar gleymist það lykilatriði sem Viðreisn hefur alla tíð lagt áherslu á þegar kemur að sölu ríkiseigna: Salan þarf að vera í þágu almennings, ekki útvalinna.“