Hefur áhyggjur af því að réttaröryggi borgara sé ógnað

Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, telur að alvarlegur dómgreindarbrestur hafi orðið við viðbrögð sérsveitar lögreglu í útkalli um helgina. Ekki er um einangrað tilvik að ræða og þingmaðurinn furðar sig á viðbrögðum dómsmálaráðherra.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Auglýsing

Aðgerðir sér­sveitar lög­reglu í Kópa­vogi síð­ustu helgi komu til tals öðru sinni á Alþingi í dag. Þór­unn Svein­bjarn­ar­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, furð­aði sig á við­brögðum Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Arn­dísar Önnu Krist­ín­ar­dóttur Gunn­ars­dótt­ur, þing­manni Pírata.

Út­kallið sem um ræðir átti sér stað síð­degis á laug­ar­dag þegar lög­reglu barst til­kynn­ing um vopn­aðan mann í Kópa­vogi. Sér­­­sveit lög­­regl­unnar hand­tók mann vegna máls­ins en fljótt kom í ljós að um mis­­skiln­ing var að ræða, vopn­aði mað­ur­inn reynd­ist vera börn í kúreka­leik.

Mann­inum og fjöl­­skyldu hans var brugðið og var veitt áfalla­hjálp í kjöl­far­ið. „Þar lenti venju­leg fjöl­skylda í aðstæðum sem eng­inn ætti að lenda í nokkru sinn­i,“ sagði Þór­unn í ræðu sinni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag. Arn­­dís Anna spurði dóms­­mála­ráð­herra um verk­lag lög­­­reglu í málum sem þessum í óund­ir­­búnum fyr­ir­­spurn­­ar­­tíma á Alþingi á mánu­dag.

„Getum alltaf átt von á því að slíkt hend­i“

Þór­unn vakti athygli á orðum dóms­mála­ráð­herra, eða öllu heldur hvernig hann svar­aði fyr­ir­spurn Arn­dísar Önnu. Ráð­herr­ann sagði að aldrei verði hjá því kom­ist að mis­­tök, líkt og urðu á laug­­ar­dag, geti átt sér stað í hita leiks­ins. „Auð­vitað er það okkar mark­mið með þjálfun og verk­lags­­reglum að tak­­marka slíkt eins og hægt er,“ sagði Jón.

Auglýsing
Dómsmálaráðherra sagði verk­lags­­reglur hjá lög­­regl­unni þegar gripið er til vopna vera mjög ítar­­leg­ar. Hann sagð­ist þó ekki þekkja ein­­stök dæmi. „En þetta dæmi sem hér var lýst er sorg­­legt en við getum alltaf átt von á því að slíkt hend­i,“ sagði dóms­­mála­ráð­herra.

„Við búum í sam­­fé­lagi þar sem að vopna­­burður er að verða víð­tæk­­ari heldur en hann hefur verið áður,“ hélt ráð­herr­ann áfram og vís­aði í fjölda útkalla þar sem bregð­­ast þarf við vopna­­burði.

Ekki mann­leg mis­tök heldur alvar­legur dóm­greind­ar­brestur

Þór­unn sagð­ist ekki vilja halda því fram að mis­tök séu ekki gerð en að hún telji það óhugs­andi að hægt sér að afgreiða við­brögðin við útkall­inu sem sér­sveit lög­reglu fór í á laug­ar­dag sem mann­leg mis­tök þegar sér­sveit­ar­menn mæti „með alvæpni, ógni venju­legu fólki heima hjá sér og hand­taki það. Mér er nær að halda að í þessu til­tekna máli hafi verið á ferð­inni mjög alvar­legur dóm­greind­ar­brestur í við­brögð­un­um,“ sagði hún.

Þór­unn gerir fast­lega ráð fyrir að málið verði vænt­an­lega tekið fyrir af nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu.

„En það er hins vegar alveg ljóst að þetta er ekki ein­angrað til­vik, því mið­ur, við höfum fleiri dæmi nýverið af fram­göngu sér­sveit­ar­innar og ég hef áhyggjur af því að réttar­ör­yggi borg­ar­anna sé ógn­að.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent