Icelandair tekur eina MAX vél úr rekstri

Icelandair hefur tekið eina Boeing 737 MAX vél í flota sínum tímabundið úr rekstri meðan skoðun á rafkerfi fer fram og viðeigandi úrbætur gerðar í kjölfarið. Málið tengist ekki hinu svokallaða MCAS kerfi sem olli kyrrsetningu véla af þessari gerð.

Icelandair gamla lógó
Auglýsing

Icelandair hefur tekið eina Boeing 737 MAX vél úr rekstri. Sam­kvæmt til­kynn­ingu frá félag­inu er tekið fram að málið teng­ist ekki hinu svo­kall­aða MCAS kerfi sem olli því að MAX vélar voru kyrr­settar víðs­vegar um heim.

Til­kynn­ing Icelandair vegna vél­ar­innar sem um ræðir er svohljóð­andi: „Eins og fram hefur komið til­kynnti Boeing í síð­ustu viku um mögu­legt tækni­legt atriði sem teng­ist raf­kerfi í til­teknum Boeing 737 MAX vél­um, sem í kjöl­farið voru teknar tíma­bundið úr rekstri hjá nokkrum flug­fé­lögum á meðan lausn væri fundin á mál­inu. Fram kom að þetta ætti ekki við um MAX vélar Icelanda­ir. Í kjöl­far nán­ari grein­ingar hjá Boeing, hefur Icelandair nú verið til­kynnt að sam­bæri­legt mál hafi áhrif á eina MAX vél í flota Icelanda­ir. Icelandair hefur því í var­úð­ar­skyni tekið til­tekna vél úr rekstri á meðan skoðun fer fram og úrbætur gerðar sam­kvæmt til­mælum Boeing og banda­rískra flug­mála­yf­ir­valda. Rétt er að taka fram að málið teng­ist ekki hinu svo­kall­aða MCAS kerfi vél­ar­innar og er því ekki tengt kyrr­setn­ingu vél­anna sem hefur verið aflétt.“

Auglýsing

Mikið hefur verið fjallað um flug­vélar af þess­ari gerð eftir þær voru kyrr­settar vegna MCAS kerf­is­ins. Icelandair tók MAX þotur sínar aftur í notkun í fyrra hluta síð­asta mán­aðar en þá höfðu þær ekki sinnt hlut­verki sínu í nærri tvö ár en vél­arnar voru kyrr­settar 12. mars 2019. Kyrr­setn­ingin hafði mikil áhrif á rekstur flug­fé­lags­ins en gert hafði verið ráð fyrir því að MAX vél­arnar myndu sam­svara 27 pró­sent af sæta­fram­boði félags­ins árið 2019.

Icelandair fékk á end­anum bætur frá Boeing vegna kyrr­setn­ing­ar­inn­ar. Út frá rekstr­ar­reikn­ingi í árs­fjórð­ungs­skýrslu fyrir þriðja árs­fjórð­ung síð­asta árs má áætla að bæt­urnar hafi numið um 30 millj­ónum Banda­ríkja­dala.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent