Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt tillögu forsætisráðherra, félags- og barnamálaráðherra, dómsmálaráðherra og utanríkisráðherra um að fallast á tillögur flóttamannanefndar vegna þess „ófremdarástands sem hefur skapast í Afganistan í kjölfar valdatöku Talíbana“.
Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins í dag en fundur ríkisstjórnarinnar var í morgun.
„Með tillögum flóttamannanefndar er stutt við þær fjölskyldur sem eru hér á landi og eiga rétt á sameiningu við fjölskyldumeðlimi í Afganistan. Þá verður lögð áhersla á að aðstoða einstaklinga sem eru í bráðahættu vegna starfa sinna í Afganistan, hvort sem það er fyrir Atlantshafsbandalagið eða á sviði jafnréttismála,“ segir í tilkynningunni.
Aðgerðir í fjórum liðum
Fyrstu viðbrögð og aðgerðir stjórnvalda samkvæmt tillögum flóttamannanefndar eru í fyrsta lagi að tekið verði á móti starfsfólki sem vann með og fyrir Atlantshafsbandalagið, ásamt mökum þeirra og börnum. Horft verði sérstaklega til þeirra sem störfuðu með íslensku friðargæslunni.
Í öðru lagi að fyrrverandi nemendum frá Afganistan við jafnréttisskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, ásamt mökum og börnum, verði boðið til landsins.
Í þriðja lagi að íslensk stjórnvöld muni aðstoða þá Afgana sem eiga rétt á fjölskyldusameiningu eða eru komnir nú þegar með dvalarleyfi hér á landi en geta ekki ferðast á eigin vegum að komast til landsins. Um sé bæði að ræða einstaklinga sem hafa fjölskyldutengsl hér sem og einstaklingar sem hyggjast hefja hér nám.
Í fjórða lagi að umsóknir um fjölskyldusameiningu, samkvæmt lögum um útlendinga, við Afgana búsetta hér landi verði settar í forgang og aukið við fjárveitingar til þess að hraða umsóknunum.
Eiga erfitt með að meta fjöldann – en áætlað er að hann verði allt að 120 manns
Heildarfjöldi þeirra sem tekið verður á móti liggur ekki endanlega fyrir, samkvæmt tilkynningu á vef Stjórnarráðsins, en áætlað er að hann verði allt að 120 manns.
„Erfitt er að meta fjöldann nákvæmlega þar sem hann fer eftir fjölskyldusamsetningu. Ísland hefur hingað til tekið á móti afgönsku kvótaflóttafólki í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og mun halda því áfram en í ljósi þess neyðarástands sem nú hefur skapast í Afganistan er hins vegar mikilvægt að íslensk stjórnvöld leggi sitt af mörkum nú þegar.
Flóttamannanefnd leggur enn fremur til að stofnaður verði aðgerðahópur sem hefur það hlutverk að útfæra framkvæmd tillagnanna en ljóst er að hún er flókin þar sem huga þarf að flutningi fólksins til landsins, tryggja öryggi þess og nauðsynlega aðstoð við komu til landsins. Í flóttamannanefnd sitja fulltrúar félags- og barnamálaráðherra, dómsmálaráðherra og utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. Auk þess sitja áheyrnarfulltrúar frá Rauða krossinum á Íslandi, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Útlendingastofnun fundi nefndarinnar,“ segir í tilkynningunni.