Ítalskir lögregluþjónar hafi undrast komu Antons og Viktoríu

Hinn rússneski Anton Garbar, sem vísað var úr landi ásamt Viktoríu eiginkonu sinni í gær, segir að ítalskir lögreglumenn hafi undrast komu þeirra til Mílanó í fylgd fjögurra íslenskra lögregluþjóna. Hjónin eru nú í haldi ítalskra yfirvalda.

Viktoría og Anton Garbar eru nú í haldi ítalskra yfirvalda, eftir að hafa verið fylgt frá Íslandi í fylgd fjögurra lögregluþjóna.
Viktoría og Anton Garbar eru nú í haldi ítalskra yfirvalda, eftir að hafa verið fylgt frá Íslandi í fylgd fjögurra lögregluþjóna.
Auglýsing

Anton og Vikt­oría Gar­bar, ung rúss­nesk hjón sem sóttu um alþjóð­lega vernd hér á landi í kjöl­far þess að hafa flúið Rúss­land fyrr á árinu af ótta við póli­tískar ofsókn­ir, voru flutt til Mílanó á Ítalíu í gær, með milli­lend­ingu í Kaup­manna­höfn, í fylgd fjög­urra íslenskra lög­reglu­þjóna.

Þetta sagði Anton í skila­boðum til Kjarn­ans í nótt, úr varð­halds­her­bergi sem þau hjón deildu á flug­vell­inum í Mílanó. Hann segir að þau hafi flogið til Kaup­manna­hafnar kl. 5 í gær­morgun og setið svo í 4-5 tíma á Kastr­up-flug­velli í litlu her­bergi með dregið fyrir dyr og glugga. Lög­reglan hafi komið vel fram við þau, fært þeim sam­lokur og kaffi.

Er þau lentu á Ítal­íu, segir Anton að ítalskir lög­reglu­þjónar hafi virst undr­andi á því að sjá þau. Þeir hafi spurt íslenska starfs­bræður sína af hverju þeir væru að koma með rúss­nesku hjónin til Ítal­íu, og að eftir smá þögn hafi íslenska lög­reglan svarað að það væri á grund­velli Dyfl­inn­ar-­reglu­gerð­ar­inn­ar. Í kjöl­farið hafi ítalska lög­reglan spurt hvort þau væru búin að sækja um alþjóð­lega vernd á Ítal­íu, sem þau hafa ekki gert.

Auglýsing

„Eftir þetta sögðu lög­reglu­þjón­arnir fjórir bless við okkur og fóru á hót­el. Þeir fljúga aftur heim [í dag],“ segir Anton í skila­boðum til Kjarn­ans.

Í kjöl­farið segir Anton að ítalska lög­reglan hafi fært þau inn á gang á flug­vell­in­um, og að tveir lög­reglu­þjónar sem ekki hafi talað neina ensku hafi gert til­raun til að taka af þeim sím­ana. „Eftir að við spurðum hvort við værum hand­tekin voru okkur færðir sím­arnir aftur og við flutt í her­bergi þar sem við erum bara tvö,“ segir Ant­on.

Anton segir jafn­framt að skömmu eftir mið­nætti hafi lög­reglu­maður þotið inn í her­bergið til þeirra, er hann og Vikt­oría voru við það að festa svefn. Hann spurði af hverju Anton hefði verið að nota sím­ann sinn, og telur Anton að hann hafi séð hann nota sím­ann á mynda­vélum sem eru í her­berg­inu. Anton seg­ist hafa svarað því til að hann hefði notað sím­ann, þar sem þetta væri hans sími.

Í kjöl­farið segir hann að lög­reglu­mað­ur­inn hafi yfir­gefið her­bergið án þess að loka hurð­inni og hávær sam­töl lög­reglu­þjóna hafi haldið fyrir þeim vöku. Anton sagði við Kjarn­ann, í skila­boðum sem hann sendi í nótt, að þeim hefði verið sagt að skrán­ing­ar­skrif­stofa lög­reglu vegna Dyfl­inn­ar-end­ur­send­inga opn­aði kl. 10.

Íslensk vin­kona hjón­anna, sem hefur verið í sam­bandi við þau í morg­un, segir í færslu á Face­book að Anton og Vikt­oría hafi verið færð á lög­reglu­stöð í mið­borg Mílan þar sem þeim verði haldið í tvo daga á meðan þau sæki um alþjóð­lega vernd á Ítal­íu. Þeim verði úthlut­aður túlk­ur.

Anton og Vikt­oría höfðu verið á Íslandi frá því í byrjun apr­íl. Sökum þess að þau fóru fyrst til Ítal­íu, á leið­inni hing­að, hafa íslensk yfir­völd þó synjað þeim um alþjóð­lega vernd á Íslandi, bæði Útlend­inga­stofnun og síðar kæru­nefnd útlend­inga­mála.

Í grein sem Anton fékk birta í Kjarn­anum á þriðju­dag sagði hann að þau hjónin teldu mál þeirra hryggi­leg mis­tök íslenska útlend­inga­mála­kerf­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent