Japan eykur fé til varnarmála til að mæta Kína

china_fuck_you.jpg
Auglýsing

Varn­ar­mála­ráðu­neyti Jap­ans hefur óskað eftir auknum fjár­munum til varn­ar­mála á næsta ári til að geta elft her sinn gagn­vart Kína. Kín­verjar hafa und­an­farið sótt í sig veðrið í Asíu og gert aukið til­kall til umdeildra land­svæða og eyja með útþenslu herja sinna.

Þess vegna hefur ráðu­neytið óskað eftir því að fá 5,09 trilljónir jena, eða um það bil 5,5 trilljónir íslenskra króna í fjár­heim­ildir á næsta fjár­lögum sem taka gildi í apríl 2016. Kín­verjar hafa und­an­farin ár notað land­fyll­ingar til að búa til eyjur á umdeildum svæðum í Suður Kína­hafi og byggt á þeim her­stöðv­ar. Þá hafa Kín­verjar jafn­framt ásælst Senkaku-eyja­kla­s­ann sem lýtur stjórn Jap­ana.

Í morgun fluttu ástr­alskir fjöl­miðlar fréttir af því að Kín­verjar væru nú til­búnir að beita her­afli frá þessum mann­gerðu eyj­um; her­stöðvar séu til­búnar og að það sé lítið sem banda­lag Banda­ríkja­manna, Ástr­ala og ann­ara ríkja í Suður Kína­hafi geti gert til að koma í veg fyrir ólög­legar aðgerðir Kín­verja.

Auglýsing

Þá er haft eftir hern­arð­ar­sér­fræð­ingum að árið 2017 verði þessar her­stöðvar búnar höfn­um, skál­um, brjóst­virkj­um, fall­byssum, flug­völlum og lang­drægum rat­sjár­kerfum sem geri Kín­verjum kleift að beita her­afli víða á þessu umdeilda svæði. Þannig gætu þeir haft áhrif á flutn­inga­leiðir og bannað öðrum ríkjum sem gera til­kall til svæð­is­ins að koma þar.

Þrír fimmtu hlutar allra flutn­inga til og frá Ástr­alíu fara til dæmis um svæð­ið. „Þetta er gríð­ar­lega stór taktískur sigur Kín­verja,“ hefur The Sydney Morn­ing Her­ald eftir opin­berum starfs­manni í Ástr­al­íu.

Japan hefur jafnt og þétt aukið útgjöld til hern­að­ar­mála síð­ustu fjögur ár, að þeirra sögn til að mæta her­afli Kín­verja. Tíu árum áður hafði Japan dregið veru­lega úr útgjöldum til varn­ar­mála en áhyggjur af stækkun kín­verska flot­ans hafa snúið þeirri þróun við. Þessi þróun mála er einnig í takti við stefnu­mótun Shinzo Abe, for­sæt­is­ráð­herra Jap­an, sem vill mæta kín­verskum áhrifum og auka mátt jap­anska hers­ins.

Hern­að­ar­á­herslum Abe hefur verið mót­mælt í Japan en hann hefur ítrekað farið þess á leit að stjórn­ar­skrár­á­kvæðum verði breytt svo jap­anska hernum verði gert kleift að berj­ast á erlendri grundu, í fyrsta sinn síðan í Seinni heim­styrj­öld­inni.

Á leið­toga­fundið ASEAN-­ríkj­anna í Suð-Austur Asíu í sumar reyndu Kín­verjar að slá á áhyggjur nágranna­þjóða sinna með því að segj­ast vera hættir allri eyja­myndun með upp­fyll­ingum á skerj­um. Aðrar þjóðir tóku fálega í þær yfir­lýs­ingar og bentu á hern­að­ar­upp­bygg­ingu á þessum eyjum sem væru varla til að skapa frið um svæð­ið.

Kínverjar eru hættir framkvæmdum við Spratly-eyjar. Kín­verjar eru hættir fram­kvæmdum við Sprat­ly-eyj­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None