Kannast ekki við undanbrögð smitaðra

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn kannast ekki við dæmi um að fólk sem greinist með COVID-19 á heimaprófi fari ekki í PCR-próf til að komast hjá því að smitið sé skráð og að reglum þurfi að fylgja.

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn.
Auglýsing

„Nei, við könn­umst ekki við svona,“ segir Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varn­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, spurður um ábend­ingu sem barst Kjarn­anum um að fólk sem greind­ist jákvætt fyrir kór­ónu­veirunni á heima­prófum færi ekki í PCR-­próf til að kom­ast hjá því að smitið væri skráð og það yrði að fylgja þeim reglum sem gilda um ein­angr­un.

„Það ætti eng­inn að treysta heima­prófum sem stað­fest­ing­u,“ segir Víðir og bætir við að PCR-­próf sé eina við­ur­kennda aðferðin til þess.

Er fólk hefur greinst jákvætt fyrir veirunni á PCR-­prófi, þar sem strok er bæði tekið úr nefi og munni, eru upp­lýs­ingar um það færðar í gagna­grunn sem svo m.a. er nýttur til birt­ingar gagna á COVID.is, upp­lýs­inga­síðu um stöðu far­ald­urs­ins. Sá sem er með stað­festa COVID-19 sýk­ingu þarf svo að fara í ein­angrun og getur átt von á sím­tali frá heil­brigð­is­starfs­fólki COVID-­göngu­deild­ar­inn­ar. Ein­angrun stendur almennt í sjö daga eftir að jákvæð nið­ur­staða fæst á PCR-­prófi – ekki sjö daga frá því að hin jákvæða nið­ur­staða á heima­prófi fæst.

Auglýsing

Sam­kvæmt nýjum reglum um ein­angrun getur fólk sem lokið hefur sjö daga ein­angrun eftir stað­fest smit útskrifað sig sjálft að því til­skildu að þeir finni ekki fyrir sjúk­dóms­ein­kenn­um.

9.815 eru í ein­angrun á land­inu í dag og eru það allt ein­stak­lingar sem fengið hafa stað­festa jákvæða nið­ur­stöðu á PCR-­prófi. 1.101 greind­ist með veiruna inn­an­lands í gær.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent