Kolaflutningar fá forgang í þýskum járnbrautarlestum

Þýska ríkisstjórnin hefur samþykkt að kolaflutningar fái forgang í járnbrautarlestum landsins. Stjórnvöld hafa stefnt að því að hætta brennslu kola en stríðið í Úkraínu hefur haft mikil áhrif á þau áform.

Kolaverin hafa verið ræst að nýju í Þýskalandi.
Kolaverin hafa verið ræst að nýju í Þýskalandi.
Auglýsing

Næstu sex mán­uði hið minnsta fá kol for­gang í járn­braut­ar­lestum Þýska­lands. Þetta kemur ekki til af góðu enda höfðu stjórn­völd í Þýska­landi stefnt að því að hætta bæði vinnslu kola og brennslu þeirra á næstu árum í því mark­miði að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. En nú blasa við þreng­ingar í raf­orku­fram­leiðslu sem eiga sér ýmsar skýr­ing­ar, m.a. þær að inn­flutn­ingur á kolum frá Rúss­landi hefur stöðvast vegna inn­rásar þeirra í Úkra­ínu og við­skipta­þving­ana í kjöl­far­ið.

Sömu­leiðis hefur dregið veru­lega úr inn­flutn­ingi á rúss­nesku gasi til Evr­ópu­ríkja. Hann stöðv­að­ist reyndar um hríð í sumar að sögn Rússa vegna við­halds á gasleiðslu. Og eftir að því við­haldi lauk hefur gas­streymið ekki náð sömu hæðum og áður. Ótt­ast er mjög að Pútín Rúss­lands­for­seti muni nota gasið til þving­ana í vetur þegar orku­þörfin er mest. Kolin verða því áfram nýtt í stórum stíl til að knýja kola­ver sem fram­leiða raf­magn fyrir þýska þjóð.

Auglýsing

En for­gangur kol­anna í járn­braut­ar­lest­irnar á sér líka aðra skýr­ingu. Hún er sú að yfir­borð Rínar og ann­arra áa sem not­aðar eru til að flytja varn­ing milli landa og lands­hluta er í sögu­legu lág­marki eftir gríð­ar­lega þurrka­tíð sum­ars­ins. Svo lítið vatn er í ám að stór­flutn­ingar um þær eru nær ómögu­leg­ir.

Það er ekki eins og járn­braut­ar­lestir Þýska­lands hafi brunað tómar um teina. Þær eru yfir­leitt þaul­setnar af allra handa varn­ingi. Að veita kola­flutn­ingum for­gang mun því koma niður á öðrum vöru­flutn­ing­um, að minnsta kosti á köfl­um.

Far­þega­lestir þurfa að bíða

Sam­kvæmt ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar fá allir flutn­ingar er tengj­ast orku­öflun for­gang í lest­irn­ar. Ferðir verða tíð­ari, farmur lest­anna þyngri sem gæti haft áhrif á lífs­gæði þeirra sem búa í nágrenni lestar­tein­anna. Þannig mun hávaði aukast og jafn­vel stað­bundin loft­meng­un.

„Þetta gæti líka þýtt að far­þega­lestir þurfa að bíða,“ segir í til­kynn­ingu frá þýska rík­is­lestar­fé­lag­inu Deutsche Bahn. Seink­anir á slíkum lestum eru þegar tíðar og hafa verið gagn­rýnd­ar.

En rík­is­stjórnin telur að nýju regl­urnar um for­gangs­flutn­ing kola og olíu séu nauð­syn­legar svo að ekki komi til þess að loka þurfi kola­verum þegar vet­ur­inn gengur í garð.

Þjóð­verjar höfðu þegar lokað nokkrum kola­verum til að ná mark­miðum sínum í lofts­lags­málum og fleiri slíkar lok­anir voru fyr­ir­hug­aðar á næst­unni. Mark­miðið var að loka þeim sem flestum fyrir ára­mót. En nú hefur U-beygja verið tekin og ver sem búið var að loka hafa verið ræst að nýju og tengd við flutn­ings­kerf­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent