Knattspyrnumaðurinn Kolbeinn Sigþórsson hefur sent frá sér yfirlýsingu, þar sem hann segist hvorki kannast við að hafa áreitt eða beitt Þórhildi Gyðu Arnarsdóttur og vinkonu hennar ofbeldi á skemmtistaðnum B5 árið 2017. Hann segist hafa neitað sök, en viðurkennir þó að hegðun sín hafi ekki verið til fyrirmyndar og hann hafi beðist afsökunar á því, eftir að hafa hitt Þórhildi Gyðu og vinkonu hennar vorið 2018 og hlustað á þeirra upplifun af atvikum.
Þórhildur Gyða steig fram í fréttum RÚV í síðustu viku og lýsti því að landsliðsmaðurinn hefði gripið um klof hennar og tekið sig hálstaki þannig að hún hefði verið með sjáanlega áverka í tvær til þrjár vikur.
„Ég iðraðist og tók á því ábyrgð og var tilbúinn að leita sátta. Þær höfðu uppi kröfu um afsökunarbeiðni og greiðslu sem ég féllst á. Auk þess greiddi ég 3 milljónir króna til samtakanna Stígamóta og studdi þannig mikilvæga baráttu samtakanna gegn kynferðisofbeldi,“ segir í yfirlýsingu Kolbeins, sem var tekinn úr landsliðshópi A-landsliðs karla að beiðni stjórnar KSÍ eftir að málið opinberaðist yfir helgina.
KSÍ upplýst um sáttagreiðslurnar
Í yfirlýsingu Kolbeins segir að málinu á milli Þórhildar Gyðu og hans hafi lokið með áðurnefndri sáttagreiðslu, sem KSÍ hafi verið upplýst um. Kolbeinn segir jafnfram að „afneitun KSÍ“ á því að hafa haft vitneskju um nokkur mál af þessu tagi hefði leitt til þess að „Þórhildi Gyðu fannst hún rænd sinni sátt.“
„Ég hef skilning á því,“ segir Kolbeinn, sem leikur knattspyrnu með sænska liðinu IFK Gautaborg.
„Ég harma mína hegðun á þessum tíma og tek harða afstöðu gegn hvers kyns ofbeldi. Ég er enn markvisst að vinna í mínum málum,“ segir Kolbeinn.
Knattspyrnumaðurinn segist í yfirlýsingu sinni hafa átt í erfiðleikum á undanförnum árum. Hann hafi verið andlega á slæmum stað, mikið meiddur og að framtíð ferils hans sem knattspyrnumanns hafi verið í mikilli hættu.
Yfirlýsing Kolbeins í heild sinni:
Á undanförnum árum hef ég átt í erfiðleikum, verið andlega á slæmum stað, mikið meiddur og framtíð ferils míns sem knattspyrnumanns í mikilli hættu. Ég kom mér í aðstæður þar sem ég hegðaði mér með óviðeigandi hætti. Þórhildur Gyða Arnarsdóttir hefur stigið fram og lýst sinni upplifun af atviki á skemmtistaðnum B5 haustið 2017. Vorið 2018 hitti ég Þórhildi Gyðu og vinkonu hennar og hlustaði á þeirra upplifun.
Ég kannaðist ekki við að hafa áreitt þær eða beitt ofbeldi og neitaði sök. Hegðun mín var hins vegar ekki til fyrirmyndar og baðst ég afsökunar á henni. Ég iðraðist og tók á því ábyrgð og var tilbúinn að leita sátta. Þær höfðu uppi kröfu um afsökunarbeiðni og greiðslu sem ég féllst á. Auk þess greiddi ég 3 milljónir króna til samtakanna Stígamóta og studdi þannig mikilvæga baráttu samtakanna gegn kynferðisofbeldi.
Með þessu var málinu lokið af okkar hálfu. KSÍ var upplýst um framvindu sáttaviðræðna og lyktir þeirra en afneitun KSÍ leiddi til þess að Þórhildi Gyðu fannst hún rænd sinni sátt. Ég hef skilning á því.
Ég harma mína hegðun á þessum tíma og tek harða afstöðu gegn hvers kyns ofbeldi. Ég er enn markvisst að vinna í mínum málum.