Knattspyrnusamband Íslands sendi frá sér yfirlýsingu í dag, þar sem segir að sambandið geri „engar tilraunir til að þagga niður ofbeldismál eða hylma yfir með gerendum.“ Þar segir jafnframt að „dylgjum“ um slíkt sé alfarið vísað á bug.
Yfirlýsingin var send á fjölmiðla undir yfirskriftinni „Að gefnu tilefni“ en lítið hefur heyrst úr herbúðum sambandsins í kjölfar þess að Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kennari við Borgarholtsskóla og forkona jafnréttisnefndar Kennarasambands Íslands, ritaði aðsenda grein á Vísi og gagnrýndi sambandið harðlega.
Þar vísaði hún til frásagnar ungrar konu af kynferðislegu ofbeldi sem hún varð fyrir árið 2010. Gerendurnir voru sagðir hafa verið landsliðsmenn Íslands í fótbolta. Þetta mál er ótengt máli landsliðsmannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar, sem þessa dagana sætir lögreglurannsókn í Englandi vegna meintra kynferðisbrota gegn barni.
„Fleiri frásagnir eru um landsliðsmenn sem eru sagðir beita konur ofbeldi – bæði kynferðislegu og heimilisofbeldi. Þetta virðist ekki hafa haft nein áhrif á velgengni þessara manna. Þeim er hampað og njóta mikilla vinsælda meðal þjóðarinnar. Þöggunin er alger, og KSÍ ber vitaskuld ábyrgð á henni,“ sagði meðal annars í grein Hönnu Bjargar, sem vakti mikla athygli.
Segja hvatt til aðkomu lögreglu ef grunur sé um lögbrot
Í yfirlýsingunni í dag segist KSÍ leggja áherslu á „fagleg vinnubrögð“ þegar fram komi „ábendingar eða kvartanir um meint ofbeldi“ sem megi rekja til starfsemi innan hreyfingarinnar.
KSÍ hafnar því sem áður segir að sambandið taki þátt í því að þagga niður mál og vísar ásökunum um slíkt á bug sem dylgjum.
„Ef grunur er um lögbrot er ávallt hvatt til aðkomu lögregluyfirvalda og eins er leitað aðstoðar hjá Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsmála, sem er sérfræðingur ríkisins í meðferð slíkra mála,“ segir í yfirlýsingu sambandsins, sem segist ekki geta tjáð sig um einstök mál „sem upp kunna að koma á opinberum vettvangi vegna trúnaðar og persónuverndarmála.“
KSÍ segist „ávallt tilbúið til að gera betur“ og að það víki sé er ekki undan „málefnalegri gagnrýni á starf sambandsins.“
„Því er samtalið um ofbeldismál mikilvægt og ábendingum sem eru til þess fallnar að bæta hag iðkenda og áhugafólks um knattspyrnu vel tekið.“
Yfirlýsing KSÍ í heild sinni
Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ) leggur áherslu á fagleg vinnubrögð þegar fram koma ábendingar eða kvartanir um meint ofbeldi sem með einum eða öðrum hætti má rekja til starfsemi innan hreyfingarinnar. Knattspyrnuhreyfingin á Íslandi er fjölmenn og eru skráðir iðkendur um 30 þúsund. KSÍ hefur ríka hagsmuni af því að sá mikli fjöldi sem starfar eða tekur þátt í starfsemi knattspyrnuhreyfingarinnar hér á landi upplifi öryggi og velferð í starfi sínu eða þátttöku og sambandið tekur skýra afstöðu gegn öllu ofbeldi.
Ef tilkynningar um mál sem tengjast einelti eða ofbeldi (m.a. kynferðisofbeldi) koma inn á borð sambandsins er tryggt að þau fari í viðeigandi ferli. Allir verkferlar slíkra mála hafa verið endurbættir og hafði fyrsta bylgja #Metoo m.a. áhrif þar á. Jafnréttisáætlun og jafnréttisstefna sambandsins hafa verið uppfærðar og er þar fjallað sérstaklega um kynferðislegt ofbeldi. Þá hefur KSÍ staðið fyrir vinnustofu um kynferðisofbeldi fyrir aðildarfélög sín og bætt fræðslu um kynferðisofbeldi inn í námsefni þjálfaramenntunar.
Eins og gefur að skilja eru mál sem varða kynferðisofbeldi vandmeðfarin og kallar meðferð þeirra á fagleg, vönduð og ekki síður yfirveguð vinnubrögð. Ef grunur er um lögbrot er ávallt hvatt til aðkomu lögregluyfirvalda og eins er leitað aðstoðar hjá Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsmála, sem er sérfræðingur ríkisins í meðferð slíkra mála.
KSÍ getur ekki tjáð sig um einstök mál sem upp kunna að koma á opinberum vettvangi vegna trúnaðar og persónuverndarmála. Rétt er þó að ítreka að KSÍ gerir engar tilraunir til að þagga niður ofbeldismál eða hylma yfir með gerendum. Dylgjum um slíkt er alfarið vísað á bug.
KSÍ er ávallt tilbúið til að gera betur og víkur sér ekki undan málefnalegri gagnrýni á starf sambandsins. Því er samtalið um ofbeldismál mikilvægt og ábendingum sem eru til þess fallnar að bæta hag iðkenda og áhugafólks um knattspyrnu vel tekið.