Mögulegt en ekki líklegt að sýkjast tvisvar af ómíkron

Að sýkjast tvisvar af tveimur undirafbrigðum ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar er mögulegt en gerist mjög sjaldan. Þetta er niðurstaða nýrrar danskrar rannsóknar.

Undirafbrigði ómíkron þykja ekki það stökkbreytt að telja megi þau sem ný afbrigði.
Undirafbrigði ómíkron þykja ekki það stökkbreytt að telja megi þau sem ný afbrigði.
Auglýsing

Í Dan­mörku tók und­ir­af­brigði ómíkron, BA.2, fljótt yfir upp­runa­lega afbrigð­ið. BA.2 er enn meira smit­andi en virð­ist ekki valda alvar­legri ein­kenn­um. Hins vegar er und­ir­af­brigðið BA.1 útbreidd­ara á heims­vísu og enn útbreitt í Dan­mörku og því hafa vaknað spurn­ingar um hvort hægt sé að sýkj­ast af þeim báð­um.

Smit­sjúk­dóma­stofnun Dan­merkur (Sta­tens Serum Institut) hefur nú birt fyrstu nið­ur­stöður sínar í rann­sókn á þessu. Sam­kvæmt þeim getur sami ein­stak­lingur smit­ast bæði af BA.1 og BA.2 stuttu síðar en það ger­ist þó sjald­an.

Und­ir­af­brigðin BA.1 og BA.2 eru bæði kölluð ómíkron því þrátt fyrir að um 40 stökk­breyt­ingum muni á þeim eru þær ekki þess eðlis að Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin líti svo á að um ný afbrigði sé að ræða. BA.2 grein­ist nú í 88 pró­sent til­fella í Dan­mörku og er einnig að ná yfir­hönd­inni í Bret­landi, Suð­ur­-Afr­íku og Nor­egi.

Auglýsing

Danska smit­sjúk­dóma­stofn­unin komst að því í rann­sókn sinni, sem enn hefur ekki verið rit­rýnd, að þeir sem sýkst hafa af bæði BA.1 og BA.2 séu aðal­lega ungt og óbólu­sett fólk. Það hefur aðeins upp­lifað mild sjúk­dóms­ein­kenni og eng­inn úr þessum hópi hefur lát­ist eða þurft að leggj­ast inn á sjúkra­hús.

1.739 manns í Dan­mörku greindust tvisvar með 20-60 daga milli­bili á tíma­bil­inu 21. nóv­em­ber til 11. febr­ú­ar. Á sama tíma voru 1,8 millj­ónir smita stað­fest í land­inu. Talið er að aðeins brot þeirra 1.739 sem greindust tvisvar hafi í báðum til­vikum sýkst af und­ir­af­brigðum ómíkron. Delta var enn á sveimi á þessu tíma­bili.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá WHO er ómíkron lang útbreiddasta afbrigði kór­ónu­veirunnar í heim­inum í dag og er nán­ast það eina sem rað­grein­ist. Þrjú megin und­ir­af­brigði hafa grein­st: BA.1, BA.1.1 og BA.2. WHO segir að BA.2 sé að verða útbreidd­ara en hin und­ir­af­brigðin en að í heild­ina fari þó smitum fækk­andi almennt á heims­vísu og dauðs­föllum vegna COVID-19 sömu­leið­is.

Eðli veira er að stökk­breyt­ast stöðug. Þær gera það í hverjum ein­stak­lingi og er þær smit­ast á milli ein­stak­linga. Hins vegar er nú talið lík­legt, að því er fram kom á upp­lýs­inga­fundi WHO í gær­kvöldi, að hægja muni á stökk­breyt­ing­um. Þannig að ný afbrigði muni ekki koma jafn ört fram og hingað til. Skýr­ingin er sú að ónæmi er orðið útbreidd­ara en áður var, bæði vegna sýk­inga og bólu­setn­inga.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent