Öllum opinberum sóttvarnaráðstöfunum aflétt aðfaranótt föstudags

Öllum opinberum sóttvarnaráðstöfunum, bæði innanlands og á landamærum, verður að fullu aflétt aðfaranótt föstudags.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Auglýsing

Engar opin­berar sótt­varna­ráð­staf­anir verða í gildi á Íslandi frá og með mið­nætti annað kvöld. Frá þessu greindu Willum Þór Þórs­son heil­brigð­is­ráð­herra og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í sam­tali við fjöl­miðla í ráð­herra­bú­staðnum við Tjarn­ar­götu eftir rík­is­stjórn­ar­fund, þar sem aflétt­ing aðgerða var eina málið á dag­skrá.

Fram kom í máli ráð­herr­anna tveggja að ákveðin til­mæli til almenn­ings, til dæmis um að halda sig heima ef ein­kenna er vart, verði áfram í gildi þrátt fyrir að nú falli allar aðgerð­ir, þar með talin skyldu­ein­angrun þeirra sem eru með COVID-19, úr gildi.

„Við erum að end­ur­heimta eðli­legt líf, en veiran er ennþá með okk­ur,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra við fjöl­miðla eftir rík­is­stjórn­ar­fund­inn.

Notkun PCR-­prófa að mestu hætt

Fyrr í dag var sagt frá því í til­kynn­ingu frá sótt­varna­lækni að notkun PCR-­prófa yrði að mestu hætt hér­lend­is, vegna óvið­un­andi bið­tíma á grein­ingu þeirra, en hann hefur verið 2-3 sól­ar­hringar að und­an­förnu.

Fyrir þau sem eru með ein­kenni COVID-19 verður nú ein­ungis í boði að fara í hrað­grein­ing­ar­próf, hjá heilsu­gæsl­unni eða hjá einka­fyr­ir­tækj­um.

Auglýsing

Þeir sem grein­ast jákvæðir á sjálf­próf­um/heima­prófum geta fengið grein­ing­una stað­festa með hrað­grein­inga­prófi hjá heilsu­gæsl­unni eða einka­fyr­ir­tækj­um, en grein­ing hjá þessum aðilum er for­senda fyrir því að grein­ingin verði skráð í sjúkra­skrá við­kom­andi og for­senda fyrir opin­berum vott­orðum um smit af völdum COVID-19.

Notkun á PCR-­prófum verður fram­vegis bundin við ábend­ingar lækna og þá sem eru með alvar­leg ein­kenni eða alvar­lega und­ir­liggj­andi sjúk­dóma sam­kvæmt mati lækn­is. Einnig verða PCR-­próf áfram í boði fyrir þá sem þurfa á nei­kvæðum nið­ur­stöðum slíkra prófa að halda vegna ferða­laga erlendis en þá gegn gjaldi, sam­kvæmt til­kynn­ingu sótt­varna­lækn­is.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent