Rætt um að lengja afgreiðslutíma en ákveðið að hafa aðgerðir óbreyttar

Sóttvarnatakmarkanir verða óbreyttar í tvær vikur. Á þeim tíma verður safnað gögnum, m.a. um hið nýja afbrigði ómíkrón, til að meta stöðuna.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Auglýsing

Í ljósi óvissunnar af hinu nýja afbrigði kór­ónu­veirunnar og sam­hliða því að þótt ástandið sé orðið við­ráð­an­legt í dag hafi álagið á heil­brigð­is­kerfið verið langvar­andi, verða sótt­varna­að­gerðir óbreyttar næstu tvær vik­ur. Þetta til­kynnti Willum Þór Þórs­son heil­brigð­is­ráð­herra að loknum rík­is­stjórn­ar­fundi í dag. „En við munum og bindum vonir við að við getum slakað til fyrr ef gögn benda okkur á að það sé óhætt,“ sagði Will­um. Áfram­hald­andi aðgerðir eru í full­komnu sam­ræmi við minn­is­blað sótt­varna­læknis að sögn ráð­herr­ans.

Reglu­gerð um tak­mörkun á sam­komum sem sett var 12. nóv­em­ber fellur úr gildi á morg­un, 8. des­em­ber. Er hún var sett var far­ald­ur­inn í mik­illi upp­sveiflu og á tíma­bil­inu hafa tugir smita greinst á hverjum degi. Flest voru smitin yfir 200 þann 15. nóv­em­ber. Síð­ustu daga virð­ist sem bylgjan sé í rénun þrátt fyrir að enn séu að grein­ast um og yfir 100 smit á hverjum degi. Fimm liggja nú á gjör­gæslu vegna COVID-19.

Fimm­tíu mega koma saman en allt að 500 ef hrað­próf eru not­uð. Opn­un­ar­tími veit­inga­staða er og verður sem sagt áfram til kl. 22 og þurfa gestir að hafa yfir­gefið stað­inn kl. 23.

Auglýsing

Willum segir að meðal þeirra gagna sem þarf nú að meta varða hið nýja afbrigði ómíkron. Meta þurfi t.d. hvernig afbrigðið virki gagn­vart hrað­grein­ing­ar­prófum og bólu­setn­ing­um.

Ráð­herr­ann segir að ólík sjón­ar­mið hafi verið innan rík­is­stjórn­ar­innar á fund­inum í dag um hversu hratt ætti að slaka á aðgerð­um, „en nið­ur­staðan var þessi og full sam­staða í rík­is­stjórn­inni að horfa svona á þetta.“

Á fundum var því m.a. velt upp að hans sögn hvort lengja ætti opn­un­ar­tíma veit­inga­staða eða fara úr 50 manna fjölda­tak­mörkum í hund­rað. „En maður þarf bara að hafa gögn­in,“ segir Will­um. „Það er ekki gott að taka svo­leiðis ákvarð­anir af því bara.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent