Ríkissjóður greiðir fyrir hraðprófin

Ríkisstjórnin stefnir að því að hraðpróf, sem til stendur að nýta svo halda megi stærri viðburði, verði niðurgreidd að fullu. Grímuskylda á íþrottaviðburðum utandyra verður einnig afnumin.

Áhorfendur á íþróttaviðburðum utandyra munu ekki lengur þurfa að bera grímu er þeir sitja í sætum sínum.
Áhorfendur á íþróttaviðburðum utandyra munu ekki lengur þurfa að bera grímu er þeir sitja í sætum sínum.
Auglýsing

Sam­kvæmt til­kynn­ingu frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu í dag er áætlað að fram­kvæmd hrað­prófa verði komin á fullt skrið um miðjan sept­em­ber­mánuð og að prófin verði gjald­frjáls fyrir not­end­ur, sem þýðir að sá kostn­aður sem fellur til þeirra vegna verði greiddur úr rík­is­sjóði.

Ráðu­neytið und­ir­býr nú að leita samn­inga um fram­kvæmd hrað­prófanna, sem eiga að gera það mögu­legt að allt að 500 manns verði í sama sótt­varna­hólfi á stærri við­burð­u­m.

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins segir að fundað hafi verið með hags­muna­að­ilum sem standa fyrir stórum við­burðum um frek­ari útfærslu og að ákvörð­unin hafi verið tekin um að á við­burðum þar se hrað­próf eru nýtt verði fólki heim­ilt að taka niður grímu þegar það sit­ur.

Einnig verður börnum á leik- og grunn­skóla­aldri heim­ilt að mæta á slíka við­burði án þess að kraf­ist sé nið­ur­stöðu úr hrað­prófi.

Grímu­skylda afnumin á við­burðum utandyra

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins eru einnig kynntar frek­ari til­slak­anir á sótt­varna­ráð­stöf­un­um, sem taka eiga gildi á mið­nætti. Grímu­skylda á íþrótta­við­burðum utandyra verður afnumin og gildi þá einu hvort hægt sé að tryggja eins metra fjar­lægð á milli sitj­andi áhorf­enda eða ekki.

Auglýsing

Athygli vakti fyrir rúmri viku er Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra var grímu­laus á KR-vell­inum að horfa á leik heima­kvenna gegn Vík­ingi í Lengju­deild kvenna.

Katrín sagði við blaða­menn eftir rík­is­stjórn­ar­fund dag­inn eftir að hún hefði talið að á leik ut­an­dyra, þar sem fjar­lægð á milli fólks væri tryggð, þyrfti ekki að bera grímu. For­sæt­is­ráð­herra sagði að henni þætti leið­in­legt að hafa brotið regl­urnar með þessum hætti.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent