Ríkisstjórnin hefur ákveðið að leggja niður Bankasýslu ríkisins

Ríkisstjórn Íslands segir að upp hafi komið spurningar, álitamál og gagnrýni um framkvæmd sölunnar á 22,5 prósent hlut í Íslandsbanka sem nauðsynlegt sé að rannsaka og upplýsa almenning um.

Formenn stjórnarflokkanna þriggja.
Formenn stjórnarflokkanna þriggja.
Auglýsing

Rík­is­stjórn Íslands hefur ákveðið að leggja það til við Alþingi að Banka­sýsla rík­is­ins verði lögð niður og inn­leitt verði nýtt fyr­ir­komu­lag til að halda utan um eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um. „Þar verður lögð áhersla á rík­ari aðkomu Alþingis og að styrk­ari stoðum verði skotið undir að tryggja gagn­sæi, jafn­ræði, lýð­ræð­is­lega aðkomu þings­ins og upp­lýs­inga­gjöf til almenn­ings. Frum­varp þessa efnis verður lagt fyrir Alþingi svo fljótt sem auðið er.“ 

Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfir­lýs­ingu sem birt var á vef Stjórn­ar­ráðs Íslands í morgun vegna sölu á eign­ar­hlutum rík­is­ins í Íslands­banka.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að for­menn stjórn­ar­flokk­anna þriggja, þau Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son,. fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Sig­urður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra, séu sam­mála um fram­kvæmd söl­unnar á 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka þann 22. mars hafi ekki staðið „að öllu leyti undir vænt­ingum stjórn­valda, m.a. um gagn­sæi og skýra upp­lýs­inga­gjöf.“ Þá var hlut­ur­inn seldur í lok­uðu útboði með svoköll­uðu til­boðs­fyr­ir­komu­lagi til 207 fjár­festa með 2,25 millj­arða króna afslætti frá mark­aðs­verði.

Auglýsing
Meðal ann­ars hefur verið gagn­rýnt að margir smærri fjár­festar hafi fengið að kaupa á þessum kjörum, en alls 59 þeirra sem tóku þátt keyptu fyrir minna en 30 millj­ónir króna og 79 fyrir minna en 50 millj­ónir króna. Þá voru aðilar á meðal kaup­enda sem eru í virkri lög­reglu­rann­sókn eða sem voru á meðal stærstu eig­enda banka fyrir hrun.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að upp hafi komið spurn­ing­ar, álita­mál og gagn­rýni um fram­kvæmd söl­unnar sem fór fram sem nauð­syn­legt sé að rann­saka og upp­lýsa almenn­ing um. „Rík­is­end­ur­skoðun hefur þegar hafið úttekt á því hvort salan hafi sam­rýmst lögum og góðum stjórn­sýslu­hátt­um. Þá hefur fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans hafið rann­sókn á til­teknum þáttum tengdum söl­unni. Komi fram þörf fyrir frek­ari rann­sóknir þegar nið­ur­stöður Rík­is­end­ur­skoð­unar og Seðla­bank­ans liggja fyrir muni rík­is­stjórnin beita sér fyrir slíku á vett­vangi Alþing­is.“

Þeir ann­markar sem í ljós hafi komið við und­ir­bún­ing og fram­kvæmd sölu á eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum hafi leitt í ljós þörf­ina fyrir end­ur­skoðun á lagaum­gjörð og stofn­ana­fyr­ir­komu­lagi. „Rík­is­stjórnin hefur því ákveðið að leggja það til við Alþingi að Banka­sýsla rík­is­ins verði lögð niður og inn­leitt verði nýtt fyr­ir­komu­lag til að halda utan um eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um. Þar verður lögð áhersla á rík­ari aðkomu Alþingis og að styrk­ari stoðum verði skotið undir að tryggja gagn­sæi, jafn­ræði, lýð­ræð­is­lega aðkomu þings­ins og upp­lýs­inga­gjöf til almenn­ings. Frum­varp þessa efnis verður lagt fyrir Alþingi svo fljótt sem auðið er.“

Ekki verður ráð­ist í sölu á frek­ari hlutum í Íslands­banka að sinni en ríkið á enn 42,5 pró­sent í bank­an­um. Þegar ný lög­gjöf liggi fyrir mun ákvörðun um mögu­lega sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka verða tekin fyrir á Alþingi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent